Náttúrufræðingurinn - 1973, Síða 38
178
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
er óvíst að Búrfellshraun hafi nokknrs staðar náð til sjávar nýrunn-
ið. Úr þessu verður ekki skorið að svo stöddu.
Á vestra helmingnum af hraunströnd Hafnarfjarðar, þ. e. fyrir
utan Langeyri, eykst aftur aðgrynni og útfiri eftir því sem vestar
kemur. Nú hefur komið í ljós, að á þessum grynningum er botn-
inn ekki úr Búrfellshrauni nema mjög skammt út, og vestast út
undir Balakletti nær hraunið — a. m. k. á kafla — aðeins laust niður
fyrir stórstraumsfjöruborð, eins og bráðum mun nánara frá sagt.
Sjávarbrim hefur lítið brotið hraunið í norðurströnd Hafnar-
fjarðar. Inni í firðinum hefur það hvergi myndað neinn verulegan
stall (sjávarberg eða brimstál) ofan við fjöruna. Aðeins Balaklettur
vestast í hrauninu, ásamt berginu frarn af Balaklöpp, sem er stutt
framhald hans til vesturs, getur talizt þess konar myndun, og er
bergstálið þó aðeins 1—2 mannhæðir. Aftur á móti er sams konar
stallur — og þó mun meiri bæði að hæð og lengd — fram af Hvaleyrar-
hrauni þar sem það nær til sjávar fyrir sunnan Hafnarfjörð. Af þess-
um mun á sjávarrofi hef ég fyrir löngu dregið þá liæpnu ályktun, að
Hafnarfjarðarhraun væri mun yngra en Hvaleyrarhraun (Guðmund-
ur Kjartansson 1954). En munurinn getur stafað af því einu, að
Hvaleyrarhraun liggur meir íyrir opnu hafi og þar hefur löngum
verið brimasamara en inni í firðinum.
Á tveimur köflum vestan Hafnarfjarðarbæjar er malarfjara, þ. e.
mjóar ræmur úr kastmöl með sjónum framan við hraunið. Þar heitir
Langeyrarinöl innar og Skerseyrarmöl utar. Efnið í þessum eyrum,
völur og hnullungar, virðist að miklu meira leyti úr grágrýti en úr
bergtegund Hafnarfjarðarhrauns. Þetta bendir einnig til Jress, að
sjórinn hafi lítið brotið úr hrauninu, og það nái þarna skammt út.*
A Idur Búrfellshrauns.
Lengi vel fundust hvergi neinar lífrænar leifar undir Búrfells-
hrauni. Tildrög þess, að tækifæri gafst til að aldursgreina Búrfells-
hraun með C14-aðferðinni urðu með mjög óvæntum hætti. Laugar-
* Á minnisblaði, sem Guðmundur studdist við, þegar liann liélt erindið i
Náttúrufræðifélaginu 25. október 1971, má lesa, að hann telur Búrfellshraun
vera um 18 km2 og meðalþykkt þess um 16 m. Það svarar til [tess, að rúnnnál
hraunsins, sem kom upp í Búrfelli, hafi verið um 290 millj. m3 eða tæpir 0,3 km3.
Þ. E.