Samvinnan - 01.08.1967, Blaðsíða 10
ANDRI ÍSAKSSON:
SPJALL UM SKOLARANN-
SÚKNIR OG PRÚFGRÁÐUR
GAGNFRÆDASTIGSINS
(Erindi, flutt á fundi skólastjóra
gagnfræðastigsins í Borgarnesi, 19.
júní 1967. Erindið er birt hér stytt
og með nokkrum breytingum).
I. Skólarannsóknir á íslandi.
Snemma á síðasta ári ákvað
menntamálaráðherra, að
stofnað skyldi til fastra skóla-
rannsókna á vegum Mennta-
málaráðuneytisins. Var undir-
rituðum falið að veita rann-
sóknunum forstöðu, en ráðu-
nautar rannsóknanna voru
skipaðir þeir Jóhann S. Hann-
esson, skólameistari á Laugar-
vatni, og dr. Wolfgang Edel-
stein, sem vinnur sitt aðalstarf
sem vísindamaður við Skóla-
rannsóknastofnun Vestur-
Þýzkalands í Berlín. Var verk-
efni okkar skýrgreint svo í
bréfi, að við skyldum „annast
fræðilega rannsókn á íslenzka
skólakerfinu, og verði hún
undirstaða tillögugerðar um
nauðsynlegar breytingar til að
samræma skólakerfið breyttum
þ.iöðfélagsháttum og nýjum.
sjónarmiðum í skóla- og upp-
eldismálum."
Starfið að þessu mjög svo
viðamikla verkefni hófst í iúlí-
mánuði 1966. Hefur undirritað-
ur lengst af verið einn að verki,
en ráðunautar rannsóknanna
hafa tekið þátt í starfinu, eftir
því sem hentugleikar þeirra og
mikið annríki leyfðu. Nýlega
hefur verið ráðin föst skrif-
stofustúlka að rannsóknunum,
og von er til þess, að senn verði
leyft að fá sérmenntaðan
starfsmann til sérstakra rann-
sóknarstarfa. Má því væntan-
lega búast við því, að miklir og
afar tafsamir byrjunarörðug-
leikar séu senn að baki flestir
hverjir, og að fastur skriður sé
að komast á starfið.
Hér verður ekki fjölyrt um
nokkra fasta og sjálfsagða
þætti starfsins hingað til, eins
og t. d. söfnun og könnun ís-
lenzkra og erlendra heimilda,
starf að skýrslugerð og skrán-
ingarformi o. s. frv. Mun aðeins
drepið nokkrum orðum á tvo
þætti þess starfs, sem þegar
hefur verið hafið, þ. e. í fyrsta
lagi almenna könnun skóla-
kerfisins með opnum og miðuð-
um viðtölum við skólamenn, og
í öðru lagi vinnu að tilraunum
með nýjungar í skólum.
Viðtölin voru hafin þegar í
ágústmánuði 1966. Hafa nú
verið tekin allnákvæm viðtöl
við u. þ. b. 20 skólamenn, og
hafa þeir verið fulltrúar barna-
skóla einkum, en einnig gagn-
fræðaskóla, menntaskóla,
tæknimenntunar og kennara-
menntunar, svo og stjórnar
fræðslumála.
Viðtöl þessi eru tiltölulega
opin, en það merkir fyrst og
fremst, að viðmælandinn ræð-
ur gangi viðtalsins að allmiklu
leyti. Megininngangsspurning-
in er jafnan hin sama: hvað
viðmælanda finnist helzt at-
hugavert við íslenzka skóla-
kerfið, hvar breytinga sé þörf
og hverra, út frá hans sjónar-
miði. Öll viðtölin eru vandlega
skráð og síðan sundurgreind
efnislega. Hefur verið ákveðið
að leggja niðurstöður þeirra til
grundvallar við samningu
spurningaskrár, sem ætluð er
til almennrar og formlegrar
yfirlitskönnunar á viðhorfum
skólamanna. Upphaflega var í
ráði, að spurningaskrá þessi
yrði tilbúin fyrir lok síðasta
skólaárs, en þegar á miðjum
vetri varð ljóst, að sá undir-
búningstími yrði of skammur.
Var þá afráðið að halda viðtöl-
unum áfram enn um sinn, enda
virðist meira á þeim að græða
en talið hafði verið í fyrstu.
Mun spurningaskráin því
sennilega ekki verða tilbúin til
útsendingar fyrr en um áramót.
Undirbúningur skólatilrauna,
sem skólarannsóknir skyldu
hafa umsjón með, hófst seint
í ágústmánuði 1966. Samþykkti
menntamálaráðherra í septem-
ber álitsgerð rannsóknanna um
tilhögun og skilyrði til slíkra
tilrauna, og um svipað leyti
samþykkti ríkisstjórnin, að
verja mætti nokkurri fjárhæð
úr ríkissjóði til tilraunagerðar í
skólum þegar á skólaárinu 1966
—1967.
Þegar hafa verið hafnar
þrjár tilraunir, sem skólarann-
sóknir eru aðili að og hafa um-
sjón með. Eru þær sem hér
segir:
1. Tilraun með stærðfræði-
kennslu samkvæmt mengja-
kenningunni í I. bekk Laugar-
nes- og Hvassaleitisskóla í
Reykjavík, eða alls sjö bekkjum
7 ára barna. Frumkvæðið að
þessari tilraun átti fræðsluráð
Reykjavíkur, en daglega yfir-
umsjón með framkvæmdum
hennar hefur Kristinn Gísla-
son kennari. Skólarannsóknir
hafa fylgzt allnáið með þessari
tilraun. Var t. a. m. lagt könn-
unarpróf fyrir öll tilraunabörn-
in fyrir réttum mánuði, og þá
jafnframt fyrir álíka mörg
jafngömul börn úr tveimur
öðrum skólum í Reykjavík. Eru
niðurstöður þess prófs nú í at-
hugun og úrvinnslu.
í sambandi við mengjafræði-
tilraunina skal þess getið, að
nýlega hefur verið tekin
ákvörðun um að halda henni
áfram allmjög aukinni. Verður
í því skyni haldið sérstakt
kennaranámskeið næsta haust.
2. Tilraun með dönskukennslu
í sex 6. bekkjardeildum þriggja
Reykjavíkurskóla, undir stjórn
og umsjá Ágústs Sigurðssonar
námsstjóra. Öll tilraunabörnin
tóku sérstakt próf í vor, og eru
niðurstöður þess nú í athugun
hjá námsstjóranum, en skóla-
rannsóknir munu síðan taka
við niðurstöðum hans og at-
huga þær nánar, ef ástæða
þykir til.
3. Tilraun með enskukennslu
beinnar aðferðar í 4. bekk
Langholtsskólans í Reykjavík,
alls fimm bekkjardeildum. Hef-
10