Samvinnan - 01.10.1967, Blaðsíða 27

Samvinnan - 01.10.1967, Blaðsíða 27
gæta á Þingvöllum, svo þeir legSust á eitt um að verja stað- inn skakkaföllum ef þurfa þætti, t. d. í sambandi við hugsanlega hækkun Þingvalla- vatns af völdum Sogsvirkjun- ar. Hér virðist Jónas Jónsson hafa skipt allrækilega um skoðun eftir að hann fór að starfa í Þingvallanefnd, því í umræðunum um friðunarlög- in minntist hann á eina bú- staðinn, sem þá virðist hafa verið kominn á Þingvelli, bú- stað Jóns Hermannssonar toll- stjóra, og sagði: „Og þó að margt megi segja um einstakra manna húsið í Fögrubrekku, þá hefur það þó unnið það gagn að opna augu almennings fyrir því hvernig ekki eigi að byggja í umhverfi Þingvalla." Nú standa um 20 ámóta hús innan þjóðgarðsins, og von er 25 nýrra í friðlýstu nágrenni hans. Jónas sagði enn í umræðun- um 1928: „Það, sem vakir fyr- ir þeim mönnum, sem ekki vilja spilla útliti Þingvalla, er það, að náttúran og hennar lista- smíði frá örófi alda fái að njóta sín sem bezt.“ Eigi að síður hefur gæðing- um Þingvallanefndar verið heimilað að girða af stór svæði þjóðgarðsins og stunda þar allskonar gróðurrækt að eigin geðþótta, aukþess sem gerð- ar hafa verið „opinberar" til- raunir með trjárækt í þjóð- garðinum. Annar helzti frummælandi friðunarlaganna 1928, Bern- harð Stefánsson, komst svo að orði í umræðunum: „Annað er það líka, að hugsa mætti sér þau mannvirki gerð í nágrenni Þingvalla, sem ekki ættu heima á þeim stað. . . . Þess konar mannvirki, þó góð kunni að vera í sjálfu sér, eiga ekki við á þessum fornhelga stað. Sama er, þó að þau séu ekki í sjálfri þinghelginni, ef þau eru í þeirri nálægð, að þau blasa við frá Þingvöllum, því að þá eru þau til helgispjalla. Ef nokkur staður er hér á landi, þar sem náttúran á að vera í fullum friði, og án þess að henni sé raskað af mönnum, þá eru það Þingvellir." Hér hygg ég sé kjarninn í sjónarmiðum þeirra manna sem af djörfung og framsýni fengu því til leiðar komið, að friðunarlögin voru sett og sam- þykkt, og er hörmulegt til þess að vita hver verið hefur ferill þeirrar þingkjörnu nefndar sem var sérstaklega sett til að standa vörð um þessar hug- sj ónir. í Reykjavíkurbréfi Morgun- biaðsins 27. ágúst 1967 minnist forsætisráðherra á Þingvalla- hneykslið og segir m. a.: „Um sumarbústaðabyggingar í Gjá- bakkalandi skilst manni, að tvennt sé til um, hvort Nátt- úruverndarráð eða Þingvalla- nefnd hafi úrslitaráðin, þó að niðurstaðan hafi orðið sú, að valdið væri í höndum Þing- vallanefndar. Eigi að síður hafa fleiri en einn náttúruvernd- arráðsmaður lýst megnri óánægju yfir þessari ráðstöf- un Þingvallanefndar og talað um hana sem auðsætt hneyksli. Hér skal engin afstaða tekin til þess, hvort þarna hefði átt að byggja. E. t. v. er það hæpn- ast að Þingvallanefnd skuli hafa úrskurðarvaldið." Það er hárrétt athugað hjá forsætisráðherra, að úrskurð- arvald Þingvallanefndar er „hæpnast" — það er í sann- leika sagt hneyksli. Hitt láist hæstvirtum ráðherra að koma á framfæri við lesendur sína, að úrslitavaldið er ekki hjá Þingvallanefnd, heldur hjá forsætisráðherra íslands — hann getur stöðvað óráðsíu Þingvallanefndar hvenær sem honum þóknast og ber raunar augljós skylda til þess einsog nú er komið. Fyrir slíkt fram- tak mundi hann ávinna sér þökk yfirgnæfandi meirihluta íslenzku þjóðarinnar, ef ég er ekki því glámskyggnari. Skorist Alþingi og forsætis- ráðherra undan þeirri skyldu að taka fram fyrir hendur Þingvallanefndar, eiga lands- menn þann kost síðastan að hefja almenna fjársöfnun og kaupa tæplega 50 gæðinga nefndarinnar burt úr helgi- dómi þjóðarinnar, og er þó enganveginn víst að sú Þing- vallanefnd sem nú situr heim- ili slík kaup. Og hvað er þá til ráða? s-a-m
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.