Samvinnan - 01.10.1970, Qupperneq 17
Asgeir Blöndal Magnússon talar á útijundi verkamanna. Honum var vísaS úr
Menntaskólanum á Akureyri 1930 jyrir skrij um „hreyjingu íslenzkrar öreiga-
œsku“ í tímaritið Rétt.
að hún er afl sem ekki verður
gengið fram hjá né stjórnað í
andstöðu við. En hún hefur
sýnt vanmátt sinn í baráttunni
gegn stríði, t. d. í upphafi fyrri
heimsstyrjaldar þegar alþjóða-
samband verkalýðsins hafði
ákveðið allsherjarverkfall, en
þingmenn verkalýðsflokkanna
greiddu nær undantekningar-
laust atkvæði með fjárveit-
ingum til styrjaldarreksturs.
Vanmátt sinn hefur verkalýðs-
hreyfingin einnig sýnt með
klofningnum á stjórnmála-
sviðinu, sem fylgdi í kjölfar
fyrri heimsstyrj aldar.
í dag sætir verkalýðshreyf-
ingin í neyzluþjóðfélögum
hinna riku þjóða Vestur-Evr-
ópu og Norður-Ameriku harðri
gagnrýni, og dregið er í efa afl
samtakanna og byltingarvilji.
Þessi gagnrýni hefur einkum
birzt í skrifum róttækra
menntamanna, og skýrast
kemur hún fram í ritum Her-
berts Marcuses. Þeir telja að
verkalýðshreyfingin sé orðin
samgróin tækniþjóðfélaginu og
sé ekki byltingarafl lengur.
Hinn nýi tæknilegi starfsheim-
ur sljóvgi hina neikvæðu af-
stöðu verkalýðsins til þjóð-
skipulagsins. Aftur á móti sé
byltingarafl að finna i útjöðr-
um þjóðfélagsins, hjá þeim sem
ekki eru innlyksa í sérréttinda-
heildinni. Þessi utangarðsöfl,
sem neiti núverandi þjóðfé-
lagskerfi, og byltingaröfl þriðja
heimsins séu þeir aðilar sem
knýja verði fram þjóðfélags-
byltingu. Þessi gagnrýni hefur
ekki hvað sízt komið fram
vegna hægfara umbótabaráttu
hinnar faglegu verkalýðshreyf-
ingar í Vestur-Evrópu, sem
skort hefur pólitískt inntak.
Stúdentahreyfingin á síðustu
árum hefur haldið mjög á loft
þessari gagnrýni á verkalýðs-
hreyfinguna og litið á sig sem
eina byltingaraflið í þjóðfélag-
inu. í tækniþjóðfélögum er
þörfin á menntuðu starfsliði að
leiða til þess, að menntamenn
og stúdentar eru að verða hluti
launavinnustéttarinnar. Og þó
að gagnrýna megi og meta
þurfi á nýjan leik afl verka-
lýðshreyfingarinnar, þá er það
fjarstæðukennt að líta á stúd-
entahreyfinguna sem eina
byltingaraflið i þjóðfélögum
hinna riku þjóða, heldur hlýt-
ur árangurinn i baráttunni við
efnahagslegt og félagslegt mis-
rétti í þjóðfélaginu að vera
undir þvi kominn, að náin
samvinna takist milli þessara
umbyltingarafla í nútima þjóð-
félagi.
Verkalýðshreyfingin sem þjóð-
félagsafl á íslandi
Á síðustu tveim áratugum 19.
aldar voru fyrst þær þjóðfé-
lagsaðstæður fyrir hendi hér-
lendis, sem sköpuðu forsendur
fyrir myndun verkalýðshreyf-
ingar, þ. e. tilvera ákveðinna
starfsstétta og hæfilegt þétt-
býli. Þá skóp þilskipaútgerðin
sjómanna- og verkamannastétt
við sjávarsiðuna, og vísir að
iðnaðarmannastétt má finna á
manntölum. Til þessara ára-
tuga má rekja upphaf islenzkr-
ar verkalýðshreyfingar með
stofnun Prentarafélagsins
gamla 1887, Sjómannafélagsins
Bárunnar 1894, almennra
verkamannafélaga á Akureyri
og Seyðisfirði i april 1897 og í
sama mánuði stofnun Hins ís-
lenzka prentarafélags. Hér var
um bernskuskeið hreyfingar að
ræða, og langt að biða þess að
um þjóðfélagsafl væri að ræða.
Á þessu sama timaskeiði hasl-
ar samvinnuhreyfingin sér völl,
og þó að hún yrði hér á landi
fremur hagsmunasamtök
bændaalþýðu, þá var þó á
þessu skeiði náin samvinna á
milli þessara aðila, eins og áð-
ur er getið. Á þessu bernsku-
skeiði verkalýðshreyfingarinn-
ar var aðeins sinnt hinni fag-
legu baráttu stéttarinnar, enda
voru stjórnmálin ekki bundin
við stéttaskiptingu fyrr en
sjálfstæðismálin leystust árið
1918. Hér á landi myndar
verkalýðshreyfingin ekki
stjórnmálafélög fyrr en árið
1915, með stofnun jafnaðar-
mannafélags á Akureyri, og ári
síðar er Alþýðusamband ís-
lands stofnað, bæði landssam-
band fagfélaga og stjórnmála-
félaga verkalýðsins. Þetta ár,
1916, má með nokkrum sanni
kalla upphafsár verkalýðs-
hreyfingarinnar á íslandi sem
þjóðfélagsafls. Þá vinnur fag-
hreyfingin sinn fyrsta verk-
fallssigur í Hásetaverkfallinu,
og hin pólitíska hreyfing vinn-
ur sigur í bæjarstjórnarkosn-
ingum í Reykjavík, þegar listi
verkamanna fær þrjá menn
kjörna af sjö í bæjarstjórn.
Á tímabilinu fram til 1930
tekst verkalýðshreyfingunni að
auka verulega áhrif sín i þjóð-
félaginu. Atvinnurekendur
finna sig knúða til að virða
samtök verkafólks og mynda
samtök gegn þeim, og æ fleiri
verkalýðsfélögum tekst að fá
viðurkenndan samningsrétt.
Þegar heimskreppan skall á ár-
ið 1930, voru hér á landi starf-
andi 28 stéttarfélög verkafólks.
Það segir mikið um mátt sam-
takanna, að Alþingi setur árið
1924 vökulög um vinnutima há-
seta á togurum.
Fjórði tugur 20. aldar verður
eflaust talinn lærdómsrikasti
tíminn í sögu íslenzkrar verka-
lýðshreyfingar (sem enn er
óskráð). Þessi ár heimskreppu,
atvinnubótavinnu, vonleysis,
fátæktar og fasisma mörkuðu
djúp spor og juku stéttarþroska
verkalýðsins. Þau sýndu að öll
stéttabarátta er pólitísk bar-
átta, og atvinnuleysingjabar-
áttan á þessum áratug er sá
skóli sem verkalýðshreyfingin
byggir enn á. Hreyfingin var að
vísu klofin á stjórnmálasvið-
inu, en hin harða stéttabarátta
og fjölmargir sigrar fagfélaga
í vinnudeilum efldu verkalýðs-
hreyfinguna. Vinnulöggjöfin,
sem sett var af borgaraflokk-
unum 1939, er til marks um
óttann við afl verkalýðshreyf-
ingarinnar, sem hún hafði ó-
tvírætt sýnt i vinnudeilum; án
þeirra sigra hefði þjóðstjórnin
eflaust sett afturhaldssama
vinnulöggjöf (eins og vinnu-
veitendur dreymir nú um).
Sú reynsla og þekking, sem
verkalýðshreyfingin öðlaðist á
fjórða áratugnum, gerði henni
kleift að koma fram sem sterk-
asta aflið í þjóðfélaginu. Henni
tekst að brjóta á bak aftur
þvingunarlög árið 1942, fá við-
urkenndan 8 stunda vinnudag,
vinna sína mestu kosninga-
sigra, knýja stj órnmálaf lokk
vinnuveitenda til stjórnarsam-
starfs við báða verkalýðsflokk-
ana 1944, leggja grundvöll að
lífskjarabyltingu og auka
kaupmátt tímakaupsins um
69% frá 1939 til 1945, og mest-
ur hefur kaupmáttur tíma-
kaups á íslandi verið árið 1947.
Aldarfjórðungurinn, sem lið-
inn er frá lokum seinni heims-
styrjaldar, hefur hvað snertir
baráttu verkalýðshreyfingar-
innar einkennzt af viðureign-
inni við verðbólguna. Kapp-
hlaupið milli kaupgjalds og
verðlags hefur mótað kjarabar-
15