Samvinnan - 01.10.1970, Blaðsíða 30

Samvinnan - 01.10.1970, Blaðsíða 30
Sundrung eða samstaða? en ég hlýt að setja fram mínar skoðanir en ekki þeirra. Hitt held ég að við getum allir verið sammála um, að nái það fram að ganga, að endur- skoðuð verði ráðstöfun þess fjármagns sem hið opinbera leggur til landbúnaðarins, þá sé öflugt stéttarsamband ís- lenzkra bænda sá aðili, sem bezt sé trúandi til að segja fyrir um notkun þess. Einnig að Stéttarsambandið sé heppi- legasti aðilinn til að annast þá skipulagningu framleiðslunnar, sem mér virðist æ meir aðkall- andi með hverju ári. Eins vona ég að sem flestir verkamenn og bændur verði mér sammála um það, að sam- einaðir geti þeir bætt beggja kjör, og að þeir sýni þann vilja sinn sem fyrst í verki. Að lokum langar mig til að draga fram nokkur þýðingar- mestu atriðin í stuttu máli. Helztu gallar núverandi kerf- is eru: 1. Það stuðlar að úlfúð og misskilningi milli framleiðenda og neytenda, báðum til tjóns. 2. Það tryggir hvorki hags- muni framleiðenda né neyt- enda nægjanlega vel. 3. Það gefur rikisvaldinu of mikil tækifæri til að hlaupast undan ábyrgðinni á þessum málum. 4. Það torveldar endurskipu- lagningu til hagkvæmari nýt- ingar þess opinbera fjármagns, sem til landbúnaðarins er veitt. Ljóst er, að úrbætur á þess- um sviðum yrðu bæði fram- leiðendum og neytendum til góðs. Ljóst er einnig, að þessar úrbætur verða ekki gerðar i bráð nema bændur og launa- menn taki höndum saman og hrindi þeim í framkvæmd. Bændur einir hafa ekki bol- magn til þess, og ríkisvaldið mun, eðli málsins samkvæmt, aldrei hafa forgöngu um þær. Það sem mér virðist að stefna eigi að er, að öflugt stéttarfélag bænda, í nánum tengslum við Alþýðusamband íslands, annist beina samninga við ríkisvaldið um verðlag bú- vöru og kjör bænda, og móti ásamt ríkisvaldinu landbúnað- arstefnuna á hverjum tima. Einnig þarfnast Stéttarsam- bandið aukinna valda til að framfylgja þeirri stefnu. Að lokum óska ég þess, að bændur og launamenn megi i framtíðinni vinna sameinaðir að sameiginlegum hagsmuna- málum sínum i stað þeirra bræðravíga sem tiðkazt hafa undanfarið. Þorsteinn Þorsteinsson. Baldur Óskarsson: L Það unga fólk, sem upp vex á íslandi, fær i fljótu bragði ekki skilið hversu sjálfu sér sundurþykkt og ósamstætt það fólk er, sem i orði segist að- hyllast félagshyggju. Sé litið til þeirra landa, sem næst liggja og okkur eru skyld- ust, Norðurlanda og Bretlands, blasir við allt annar þjóðmála- grunnur. í þessum löndum eru breiðir vinstriflokkar, sem ráð- ið hafa mestu um framfarir og mótun þjóðlífs áratugum sam- an. Þessir flokkar eru fyrst og fremst pólitiskt afl hinna tveggja stóru félagshreyfinga í viðkomandi löndum, verkalýðs- og samvinnuhreyfingar, sem i reynd hafa verið tvær greinar á sama meiðinum, skipaðar fólki með gagnkvæmum skiln- ingi á hlutverki hvorrar hreyf- ingar um sig. Þær hafa unnið saman með órofa tengslum aö umsköpun þjóðfélagsins með velferð allrar alþýðu fyrir aug- um. Það er ekki hægt á þessum vettvangi að rekja ýtarlega upphaf og þróun þessara tveggja hreyfinga né gera nægiiega rökstudda grein fyrir orsökum þess, að samskipti verkalýðs- og samvinnuhreyf- ingar eru með öðrum og ólik- um hætti hér en í áðurnefnd- um löndum. Hvort tveggja er þó nauðsyn til að átta sig nægilega á eðli málsins, og mun ég freista þess að rekja stuttlega nokkur atriði, sem varpað gætu skýrara ljósi á þennan veruleika. II. Samfara atvinnubylting- unni í Vestur-Evrópu, sem segja má að hefjist með iðn- byltingunni í Englandi um 1750, verður landbúnaður ekki lengur hin leiðandi atvinnu- grein; til sögunnar koma nýir og stórfelldari framleiðslu- hættir, iðnaðarborgir risa og ný stétt myndast: verkalýður- inn. Jafnhliða koma einnig fram nýjar frelsis- og þjóð- ernisvakningar, hugsjónir og hugmyndir, sem kröfur hinnar nýju stéttar um mannréttindi og lifskjör eru grundvallaðar á. Verkamenn stofnuðu sérstök stéttarfélög til að fylgja fram kröfum sínum. Þau áttu í fyrstu afar erfitt uppdráttar og voru lengi vel bönnuð. í Bret- landi var þetta bann afnumið árið 1825. Á Norðurlöndum hófst skipulögð barátta verka- lýðsins fyrst fyrir réttum 100 árum. Forgöngumenn verkamanna sáu skýrt, að barátta fyrir bættum kjörum var aðeins einn þáttur þeirrar þjóðfélags- byltingar sem gera þurfti. Þannig voru sumir þeirra jafn- framt hugsjónalegir feður samvinnustefnunnar. Hlutverk hennar skyldi vera að skapa eigin verzlunarsamtök til að hrinda arðráni kaupmanna, selja ódýrari og betri vörur og breikka þannig grundvöll lifs- kjarabaráttunnar. Þannig er samvinnuhreyfingin náskyld og tengd verkalýðshreyfing- unni, þjónar sömu markmið- um, en þó með ólíkum hætti. Þessar bræðrahreyfingar gerðu sér líka ljósa grein þess, að til að tryggja enn frekar fram- gang baráttumála sinna þyrftu þær að mynda sameiginlegt stjórnmálaafl, sem jafnaðar- mannaflokkarnir í Skandi- naviu og Bretlandi hafa verið. III. Á íslandi var að myndun þessara félagshreyfinga unnið með öðrum hætti. Atvinnuþró- unin var með ólíku móti og mun hægari en í áðurgreindum löndum. Það féll hér i skaut hins gróna bændasamfélags að innleiða samvinnustefnuna, ekki sízt sem vopn til að vega gegn hinu erlenda kaup- mannavaldi, sem hélt öllu í heljargreipum og hindraði framfarir i landinu. Þannig urðu samvinnufélögin beinlínis þáttur í frelsisbaráttu þjóðar- innar. Fyrstu skrefin voru stig- in með endurreisn Alþingis 1845, lögfestingu verzlunar- frelsis 1854 og stjórnarskránni 1874. Um það er að visu deilt, að hve miklu leyti hinir gáfuðu bændaleiðtogar Þingeyinga hafi þekkt til samvinnufélaga verkamanna í öðrum löndum. Lög þeirra voru frá upphafi einkennilega lík. Hlutverk kaupfélaganna íslenzku var þó tvíþætt: að selja afurðir bænda og útvega brýnustu nauðsynjar á lágmarksverði. Jafnframt urðu kaupfélögin í reynd einn helzti félagsmálaskóli þjóðar- innar. Árið 1882 er Kaupfélag Þing- eyinga stofnað og Samband ís- lenzkra samvinnufélaga árið 1902. Litlu siðar umskapar Hallgrímur Kristinsson Kaup- félag Eyfirðinga að hætti Rochdale-skipulagsins, og i lok annars áratugsins eru sam- vinnufélögin orðin að sterkum og áhrifarikum samtökum. Rétt fyrir aldamótin voru stofnuð fyrstu verkalýðsfélög- in. Prentarar í Reykjavík riðu á vaðið 1887, en fyrsta verka- lýðsfélagið sem verulega kveð- ur að er Sjómannafélagið Bár- an i Reykjavík, stofnað 1894. Fyrsta almenna verkalýðsfé- lagið er talið stofnað á Seyðis- firði árið 1897. Verkamenn sóttu félagshugmyndir sínar einkum til annarra landa, en þó að einhverju leyti einnig til búnaðarfélaga, kaupfélaga og góðtemplarareglunnar. Árið 1916 var Alþýðusambandið stofnað, og þá fyrst fara verka- menn að koma fram sem veru- legt þjóðfélagsafl. Aftur á móti höfðu verkamenn fram að þessum tima litil afskipti af kaupfélögunum. Fyrstu áratugina í sögu þess- ara tveggja félagshreyfinga á íslandi var því um að ræða nokkuð ólíka hagsmunahópa. Enda staðfestist það, þegar innanlandsmál verða grunnur pólitískrar flokkaskipunar í landinu. Þá voru stofnaðir tveir stjórnmálaflokkar félags- hyggjUfólksins: Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur. Enda- laust má þó deila um hvort haldbærar pólitiskar röksemd- ir hafi legið þessari tviskipt- ingu til grundvallar. Þeir menn sem að myndun þessara flokka stóðu gerðu sér ljósa grein fyr- ir gildi og mikilvægi þess, að verkamenn og bændur ynnu saman að þjóðfélagsbreyting- um. Svo fór líka, að verkamenn komu sér víða upp öflugum kaupfélögum í bæjurn og til- einkuðu sér samvinnustefnu, og á þriðja og fjórða áratugn- um tókst þessum hreyfingum verkalýðs og samvinnumanna í traustri samvinnu á stjórn- málasviðinu að hrinda i fram- kvæmd róttækum umbótum, félagslegum og atvinnulegum, sem fólkið i landinu hefur síð- an byggt framfarasókn sína á. 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.