Samvinnan - 01.10.1970, Qupperneq 38

Samvinnan - 01.10.1970, Qupperneq 38
hér við Frakkana Saint-Simon og Charles Fourier og Bretann Robert Owen. Kannski finnst einhverjum áheyrenda minna val mitt á þessum mönnum furðu- legt. En því hef ég valið einmitt þessa menn, að nú á okkar dögum hafa hug- myndir „útópistanna" aftur komizt í sviðsljósið, þegar framsæknir aðilar í þjóðfélaginu leita að úrræðum og nýjum leiðum. Ég ætla ekki að gera hinum þremur sósíalisku útópistum itarleg skil. Til þess er hvorki staður né stund. En ég ætla að minna á örfá atriði, sem þeir lögðu mikla áherzlu á og eru þess eðlis, að þau eiga erindi til okkar enn í dag og varpa um leið ljósi yfir þátt menningar- og félags- mála í samvinnu- og verkalýðssamtökun- um á liðnum árum. Litum fyrst á framlög og hugmyndir Frakkanna Saint-Simons og Charles Fouriers. Saint-Simon var af franskri aðalsætt og taldist afkomandi Karls mikla. Sagt er, að hann hafi sem ungur maður á hverjum morgni verið vakinn með kall- inu: „Rís á fætur, greifi. Þér hafið mikil afrek að vinna á þessum degi“. En Saint- Simon hafði engan áhuga á afrekum aðalsætta Frakklands. Hann gerðist sjálf- boðaliði í frelsisstríði Bandarikjamanna og kom aftur til Frakklands rétt í þann mund að stjórnarbyltingin mikla var að bylta þjóðfélagi lands hans. Á byltingar- árunum taldi hann sig fá vitrun. Hann átti að vinna afrek á sviði þjóðfélags- fræða sem stæðist fyllilega samanburð við afrek forföður hans, Karls mikla, á sviði landvinninga og hernaðarlistar. Eft- ir þennan atburð eyddi Saint-Simon öll- um fjármunum og kröftum í það að fræðast um alla þætti mannlegs lífs, eftir því sem honum entist heilsa til. Árang- urinn varð ótrúleg umbrot í hugmynda- heimi hans. En allt snerist um tvö skaut, vinnu og samstöðu. Vinnan veitir mann- inum mesta hamingju. Samstaðan er dýrmætari öllu öðru, að skilja að enginn fær lifað einn og án hjálpar og stuðnings bræðra sinna og systra. Iðnvæðing þeirra tíma h’.aut að Ijúka upp augum allra manna fyrir heildinni og þeim árangri, sem hægt væri að ná með því að virkja auðlindir. Charles Fourier var sonur kaupsýslu- manns í Besancon. Hann reis gegn stétt sinni og stöðu og sór þess dýran eið að ganga af öllum prangaralýð dauðum. Hann ætlaði að gera sitt til að menn öðluðust fullan skilning á því, að eftir tímaskeið villimennsku og samkeppni hlyti nú að renna upp tími öryggis og trygginga, sem síðan myndi leiða til enn ágætara framfaraskeiðs í mannlegu sam- félagi, þegar tími samstillingarinnar, harmóníunnar, rynni upp. Charles Fouri- er taldi sig hafa gert hliðstæða uppgötv- un á sviði samfélagsins og Isaac Newton hefði gert á sviði eðlisfræðinnar. Newton hefði gevt sér grein fyrir gildi aðdráttar- aflsins, er héldi sólkerfinu og efniseind- unum saman. Sjálfur hefði hann komizt að raun um, að næsta svipað lögmál gilti í mannheimi. Samúðin, vináttan, væri tengjandi afl, sem gegndi líku hlutverki. Charles Fourier taldi að stefna bæri að því að skipuleggja þjóðfélagið og mynda sérstakar þjóðfélagseiningar, er hann kallaði falanxa, „phalanstéres", þar sem menn á vitrænum grundvelli leystu vandamál efnahagslífsins með sameigin- legum verksmiðjurekstri og búrekstri. Báðir gerðu hinir frönsku útópistar grein fyrir hugmyndum sínum í bókum og greinum, eignuðust aðdáendur og fylg- ismenn, sem sumir hverjir gerðu tilraun- ir til að hrinda áhugamálum þeirra i framkvæmd. En fyrst og fremst urðu samt áhrif þeirra mikil í þvi að móta fé- lagsvitund og auka trú manna á mögu- leika tækninnar og yfirburði samhyggj- unnar. Félagsleg mótun og félagslegur þroski varð árangurinn, og það löngu eftir að hinar fyrstu tilraunir samrekstr- ar og samvinnu höfðu farið út um þúfur. Bretinn Robert Owen, sem telja má í senn einn fyrsta brautryðjanda verka- lýðshreyfingarinnar og samvinnuhreyf- ingarinnar í heimalandi sínu, var að mörgu leyti ólikur hinum frönsku útóp- istum, enda þótt einnig hann sé til sömu fylkingar talinn. Owen var maður hag- sýnn, með ótvíræða hæfileika á sviði við- skipta og mikla skipulagsgáfu. Hann varð verksmiðjueigandi og rak fyrirtæki sitt með fyrirhyggju, hagnaðist vel, en hafði óvenjulega tilfinningu fyrir starfsmönn- um sínum og þó alveg sérstaklega fyrir fjölskyldum þeirra og uppeldi barna þeirra. Grundvölur að mótun skapgerðar og myndun persónuleika væri lagður í æsku, og þar hefði umhverfið og mótandi áhrif þess mest að segja. Hann gekk meira að segja svo langt að fullyrða í hinu óvenjulega riti sínu frá árinu 1813, sem hann nefndi Ný skoðun á þjóðfélag- inu (A New View of Society), að tilgangs- laust væri að áfellast menn fyrir afbrot og glæpi eða jafnvel lofa menn eða lasta fyrir athafnir þeirra. Öll hegðun og at- ferli speglaði umhverfi manna og þá mót- un, er þeir hefðu hlotið sem börn. Ætti að koma í veg fyrir að menn yrðu af- brotamenn, þyrfti að beina athyglinni að fyrstu bernsku, og þar ætti ábyrgð sam- félagsins sem heildar að koma til öllu öðru fremur. Á þessum og þvílikum for- sendum byggði Owen síðan tillögur sinar og framtíðarhugmyndir um samfélagið og samtök hinna stóru heilda innan þess, þá alveg sérstaklega verkalýðsins. Þrennt í skoðunum Owens og skilningi hefur vakið sérstaka eftirtekt. Fyrst er kenning hans um mótun mannlegrar skapgerðar, sem byggjast átti auk samfélagsafskiptanna á sálfræðileg- um forsendum. Það var þetta hvort tveggja sem Owen sjálfur nefndi hina „nýju skoðun“. Annað var, að af forsendu skapgerðar- mótunarinnar eða í nánum tengslum við hana hlaut að dómi Owens að leiða ný- skipan efnahags- og atvinnulífsins á só- síalískum grundvelli, á siðrænum grund- velli sem nálgaðist trú, að þvi leyti að þar væri skilyrðislaust gengizt á hönd boðum miskunnsemi og mannúðar. Hið sósíal- íska þjóðfélag átti að ætlun Owens að byggjast upp úr svonefndum samvinnu- þorpum (cooperative villages), en þau skyldu reist þann veg, að helgastur reit- ur þorpsins, mið þess og möndull, átti að vera barnaleikvöllur í miðri byggð. Kibb- útzar ísraels voru í verulegum atriðum byggðir eftir forskrift Owens. Hið þriðja í skoðunum Owens, sem at- hygli vakti, var skilningur hans á verk- smiðjunni, ekki aðeins sem efnahagslegu og rekstrarlegu fyrirbæri, heldur miklu fremur sem þjóðfélagslegu fyrirbæri, þ. e. a. s. sem sjálfstæðum og sjálfsögðum þætti mannlegs samfélags, mönnunum til ávinnings en ekki arðráns og ama. Robert Owen átti um skeið marga sam- herja á Bretlandi, og til hans má rekja upphaf verkalýðsfélaga og samvinnufé- laga. Svo fór samt að lokum, að hug- myndir hans voru of róttækar og bylting- arkenndar, komu lika þvert á hagsmuni kapítalistanna, verksmiðjueigendanna, og þeirra sem mest völd höfðu í brezku þjóð- félagi. En skoðanir hans gleymdust ekki að heldur. Þær urðu drjúgt framlag í menningararfi Vesturlanda og hafa verið allt til þessa dags. Það er ekki ófyrir- synju, að Robert Owen hefur verið kallað- ur fyrsti talsmaður algers lýðræðis á Vesturlöndum. Hér er þá hinna fyrstu róta að leita í vestrænni sögu að sameiginlegri forsendu verkalýðshreyfingarinnar og samvinnu- hreyfingarinnar. Það var til skoðana og túlkana þessara manna og annarra, er líkar hugmyndir höfðu, sem hinir mátt- arminni í þjóðfélögum Vesturlanda sóttu vopn sín í baráttunni fyrir bættri lífsaf- komu og aukinni aðild að því að marka stefnu þess samfélags, sem þeir áttu hvað mestan þátt í að skapa auð og yfirburði fyrir. En aflvakinn í öllu var nýr skiln- ingur á manninum sjálfum, möguleikum hans og samfélagi. Og sá nýi skilningur varð að ná til þeirra manna, sem áttu að breyta aðstöðu sinni og afkomumögu- leikum á grundvelli hans. Til þessa þurfti fræðslu, áróður og sköpun nýrrar með- vitundar. Á grundvelli þeirra hugmynda, sem hinir sósíalísku útópistar lögðu fram, reis síðan hinn fræðilegi sósíalismi annars vegar fyrir afrek Karls Marx, Friedrichs Engels og Vladimírs Uljanovs eða Leníns; hins vegar radikalisminn og stefna sósí- aldemókrata með hugmyndum velferðar- þjóðfélagsins — og reyndar lika að nokkiu líberalisminn með hugmyndum um hið mikla frelsi, sem veiti möguleika til sjálfstjáningar. En það verður ekki sú þróun, sem hér skal gerð að umræðu- efni, heldur mun nú sviðið þrengt að miklum mun og horft til þeirra verkefna, sem forsvarsmenn samvinnuhreyfingar- innar hafa talið að þeim bæri að sinna öðrum fremur. Forsvarsmenn samvinnuhreyfingarinn- ar hafa alltaf lagt á það rika áherzlu, að samvinnufélög hvaða nafni sem þau nefndust væru eigin samtök, frjáls sam- tök hinna mátta minni í þjóðfélögunum eða þeirra, sem skildu að með því að bindast slíkum samtökum gætu þeir kom- ið tvennu til leiðar: í fyrsta lagi bætt afkomu sína. í öðru lagi bætt aðstöðu sína í samfélaginu. Samvinnufélög hafa fyrst og fremst verið 36
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.