Samvinnan - 01.10.1970, Side 44

Samvinnan - 01.10.1970, Side 44
landamærin sem skilja að yfirráðasvæði þeirra, en neitar að fallast á nokkra skip- an mála sem hefði í för með sér að þegn- ar hvors þýzka ríkisins um sig yrðu lög- um samkvæmt útlendingar í hinu. Auk afstöðu sovétstjórnarinnar knýr það stjórnina i Austur-Berlín til að slaka á fyrri kröfum í þessu efni, að Vestur- Þjóðverjar geta bent á, að alger þjóð- réttarlegur aðskilnaður þýzku rikjanna tveggja myndi að sjálfsögðu einnig ná til viðskiptasambanda þeirra. Það kæmi afar illa við Austur-Þýzkaland, þvi örar fram- farir í atvinnulífi þess stafa meðal ann- ars af því að það nýtur i raun og veru óopinberrar aukaaðildar að Efnahags- bandalagi Evrópu, þar sem viðskipti milli Austur- og Vestur-Þýzkalands eru toll- frjáls. Réttarstöðukröfur sem hefðu i för með sér að Austur-Þýzkalandi lokuðust bakdyrnar að EBE eru því stjórninni í Austur-Berlín ekki fastar í hendi. Aðeins eitt spurningarmerki, reyndar allstórt, er enn við samningsgerðina milli Sovétrikjanna og Vestur-Þýzkalands. Ákveðið hefur verið að leggja ekki um- saminn texta fyrir þingið í Bonn til end- anlegrar staðfestingar, fyrr en fengin er af viðræðum fjórveldanna um stöðu Vest- ur-Berlínar niðurstaða sem Vestur-Þjóð- verjar telja fullnægjandi. Vestur-Berlín hefur í tvo áratugi verið viðkvæmasta kvika Þýzkalandsmálanna. Skipting Berlínar í hernámssvæði milli fjórveldanna var ákveðin í fljótheitum á stríðsárunum og aldrei tryggilega um hnúta búið. Aðdrættir Vestur-Berlínar og samgöngur við borgina um Austur-Þýzka- land hafa verið sífellt deiluefni og hvað eftir annað legið við árekstrum milli her- námsliða Vesturveldanna annarsvegar og Sovétríkjanna hinsvegar. Vesturþýzka stjórnin ætlast nú til að fjórveldin geri með sér samning um öll þau óvissuatriði sem hingað til hafa veiið umþráttuð, áð- ur en hún fullgildir sáttmálann við Sov- étríkin. Vesturveldin eru fyrir sitt leyti fegin að þetta atriði skuli þrýsta sovét- mönnum til samkomulags, því hingað til hafa hernámsveldi Vestur-Berlínar átt undir högg að sækja allt sem varðar að- stöðu þeirra á þessum óverjandi bletti. Það sem mestum tíðindum sætir við samningsgerð sovétmanna og Vestur- Þjóðverja, er að þetta er í fyrsta skipti síðan vesturþýzka ríkið var stofnað sem stjórn þess tekur frumkvæði og hefst handa að skipa málum gagnvart ná- grannaríkjum sínum i austri á eigin spýtur. „Þýzk saga hófst á ný núna í vikunni,“ er haft eftir einum sendifull- trúa Vesturveldanna í Bonn, þegar hann var spurður álits á för Brandts til Moskvu. Gromiko kom sama atriði að í viðræðunum við Scheel. „Hingað til hefur verið viðkvæði ykkar,“ sagði hann, „að Vestur-Þýzkaland sé efnahagslegur risi en pólitískur dvergur. Nú er það lika orð- ið pólitískur risi.“ Af skiljanlegum ástæðum hafa vestur- þýzkir forustumenn forðazt eins og heit- an eldinn að hreykja sér af þvi sem gerzt hefur, þvi enn er einungis um upphaf að ræða og allt framhaldið veltur á að þeir rati rétt meðalhóf. Brandt hefur tekið við þar sem de Gaulle varð frá að hverfa að þoka áleiðis þróun Evrópu undan yfir- drottnun heimsveldanna tveggja, en hann hefur gætt þess að hafa samráð við Bandaríkjamenn jafnframt því sem hann vingast við sovétstjórnina. Banda- ríkjastjórn lætur sér vel líka að Vestur- Þýzkaland leggi á eigin ieiðir án hand- leiðslu hennar, vegna þess að hún hefur fullan hug á að létta til muna byrðarnar sem herseta hundraða þúsunda banda- rískra hermanna i Evrópu bakar banda- ríska rikissjóðnum og mannafla hersins. Fyrirætlanir Nixons forseta um að fá hamið tröllaukin innanlandsvandamál Bandaríkjanna byggjast á að honum takist að draga úr herkostnaði út um all- ar jarðir og vígbúnaðarkapphlaupinu í heild. Því er ýtt undir stjórnina í Bonn að hefjast handa að draga úr viðsjám í Mið-Evrópu jafnframt því sem Banda- ríkin og Sovétríkin ræðast við einslega, til skiptis í Helsinki og Vínarborg, um að takmarka eftirsóknina í nýja vopna- tækni áður en hún sligar efnahag beggja heimsvelda. Meðan Bandaríkin sitja föst i feninu sem þau boruðu sér ofan í með þvi að leggja til atlögu gegn byltingar- og þjóð- frelsishreyfingu í Suðaustur-Asíu, geta valdhafar þeirra með engu móti láð Vest- ur-Þjóðverjum að þeir ráðast i það einir sins liðs að kanna möguleika á lausn mála sem óútkljáð eru milli þeirra og næstu nágranna. Fagnandi undirtektir sovétstjórnarinn- ar undir frumkvæði Brandts eiga sér margar samverkandi orsakir. Þyngst veg- ur vafalaust, að Sovétmenn eygja í vin- fengi við Vestur-Þýzkaland greiðustu leiðina til að ráða fram úr erfiðasta inn- anlandsvandamáli sem að þeim steðjar, hættunni á stöðnun í atvinnulífinu. Um nokkurt skeið hefur framleiðsluaukning í sovézkum iðnaði og arðsemi fjárfesting- ar þverrað jafnt og þétt. Tækniþróun á öllum öðrum sviðum en í hergagnaiðnaði dregst sífellt lengra aftur úr háþróuðum iðnaðarríkjum Vestur-Evrópu, Bandaríkj- unum og Japan. Hér verða ekki raktar orsakirnar fyrir þessari öfugþróun, en einfaldasta ráðið til að bjarga stjórn- endum sem ábyrgðina bera frá að þurfa að standa reikningsskap gerða sinna við óhagstæð skilyrði er að útvega fjármagn og tæknikunnáttu erlendis frá. Nærtæk- asti veitandi hvors tveggja er Vestur- Þýzkaland. Þegar Brandt var í Moskvu var ákveðið að efnahagsmálaráðherra hans og tæknimálaráðherra skyldu heim- sækja Sovétríkin við fyrsta tækifæri til að leggja grundvöll að víðtæku samstarfi á þessum sviðum. Ýmis vesturþýzk fyrir- tæki athuga nú þegar að taka að sér viðamikil verkefni í Sovétríkjunum. Það spillir sízt fyrir samvinnumöguleikum, að Vestur-Þjóðverjar sjá fram á harðnandi samkeppni í öðrum heimshlutum, og væri því nýr markaður i Sovétríkjunum og öðrum Austur-Evrópulöndum hinn mesti búhnykkur. Við þetta bætist svo að sterk stórpóli- tísk rök hljóta að hvetja sovétstjórnina til að ganga til samkomulags við Vestur- Þjóðverja. Til að mynda hefur það legið ljóst íyrir 1 tvo áratugi, að sovétmenn eru reiðubúnir til að teygja sig ærið langt í því skyni að losa tengslin milli Banda- rikjanna og Vestur-Þýzkalands. Upp á síðkastið hefur enn brýnni ástæða komið til. Sovétríkin troða illsakir við Kína, og Kremlverjar vilja mikið i sölur leggja til að hafa sem frjálsastar hendur gagnvart Kínverjum. Þá er um að gera að draga úr viðsjám á markalínunni milli hernað- arbandalaganna í Evrópu, og áhrifaríkast í því skyni er að komast að samkomulagi við Vestur-Þýzkaland. Einnig er önnur hlið á sama máli; eigi Vestur-Þýzkaland í útistöðum við Sovétríkin, hlýtur að vera freistandi fyrir stjórnina í Bonn að taka höndum saman við Kinverja til að þjarma að sameiginlegum andstæðingi. Allt ber þetta þvi að sama brunni. Enn hafa ekki verið stigin nema fyrstu skrefin á þeirri braut sem ný utanríkis- stefna Vestur-Þýzkalands hefur opnað. Enn bíða torleyst viðfangsefni samninga- mannanna, einkum þeirra, sem fá það viðfangsefni að fjalla um samskipti þýzku ríkjanna tveggja. Kjarninn í hugmynd Brandts og samstarfsmanna hans, er að menn skuli ekki flana að neinu heldur ætla sér af, vinna skref fyrir skref að því að koma sambúð ríkjanna í hjarta Evrópu i eðlilegt horf og eyða þannig smátt og smátt óheillavænlegum afleið- ingum af skiptingu álfunnar. Hljómgrunninn sem nýja utanríkis- stefnan hefur fengið heimafyrir í Vestur- Þýzkalandi má bezt marka af þvi, að kominn er upp klofningur i stjórnarand- stöðuflokknum um hvernig bregðast skuli við sáttmálanum við Sovétríkin. Kiesing- er, afdankaður formaður flokksins, vill halda fast við algera andstöðu gegn stefnu Brandts og öllu sem henni fylgir. Yngri framámenn í flokknum undir for- ustu leiðtoga þingflokksins, Rainers Barz- els, eru á öðru máli. Þeir halda þvi fram, að nýja stefnan hafi þegar borið svo mikinn árangur, að kristilegir demókrat- ar geti dæmt sig úr leik til langframa, ef þeir hafni sáttmálanum við Sovétríkin. Árangurinn sem Brandt hefur náð út á við fyrir hönd Vestur-Þýzkalands stafar ekki sízt af þeim eiginleika sem um skeið virtist ætla að verða honum að fótakefli í stjórnmálabaráttunni heimafyrir, á for- tíð hans fellur enginn skuggi af Hitlers- timabilinu í sögu Þýzkalands. Ungur vinstrisósíalisti kynntist hann lokaþætti baráttunnar við nazista, varð að flýja land fyrir þeim og sneri aftur til ætt- landsins klæddur norskum einkennisbún- ingi (sem stríðsfréttaritari, ekki hermað- ur). Þennan feril gerðu andstæðingarnir, frá Adenauer til nýnazista, að persónu- legu árásarefni á Brandt og varð um tíma furðu vel ágengt, svo honum var næst skapi að leggja niður flokksforustu til að vera ekki flokki sínum til trafala. Nú er það þessi sami æviferill ásamt stjórn- málareynslu á einhverjum næðingssam- asta stað kalda striðsins, sem gerir Brandt kanslara fært að hefja þann hluta Þýzkalands sem hann stjórnar til fullnustu á bekk með öðrum ríkjum Evrópu, svo það megnar að taka þátt í að móta framtíð álfunnar að sinum hluta. ♦ 42

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.