Samvinnan - 01.10.1970, Qupperneq 62
Góðar grænmetissúpur
eru í senn hollar, ljúf-
fengar og seðjandi
HEIMILIS&
04 ^
ÍD
K
Bryndís
Steinþórsdóttir
>3
’S snmiuH
Bóndasúpa
Heitt ostabrauð.
2 msk matarolía eða smjörliki
1 blaðlaukur
1— 2 laukar
8 kartöjlur
2 tómatar
1 spánslcur pipar (paprika)
150—800 g livítkál eða blómkál
2— 3 gulrcetur
2 msk smátt saxað grœnkál
IV2 I kjötsoð (grœnmetissoð eða vatn)
2—3 súputeningar eða 1 msk grœnmetis- eða kjöt-
dujt (kraftur)
salt, pipar, timjan eða rosmarin
Hreinsið grænmetið. Skerið laukinn og gulrætumar í þunnar sneiðar, kartöfl-
urnar í teninga en hvítkálið í mjóar lengjur. Hitið grænmetið í feitinni en
brúnið það ekki. Ilellið heitu soði eða vatni yfir, kryddið og sjóðið í 10—15
mín. Skerið tómatana í báta, spánska piparinn í sneiðar og takið blómkálið í
sundur í hríslur. Bætið því út í súpuna og sjóðið með siðustu 5 mín. Kryddið
eftir bragði og klippið steinselju yfir. Berið súpuna fram vel heita með t. d.
heitum ostabrauðum.
Heit ostabrauð
4—6 pylsubrauð, rúnnstylcki eða boUur
1— -2 þylclcar ostsnciðar
4—6 þunnar jlesksneiðar
2— 3 tómatar
Kljúfið brauðin eftir endilöngu rúmlega inn að miðju. Smyrjið brauðhelming-
ana. Skerið ostsneiðina í lengjur og vefjið flesksneið um hverja lengju. Skerið
tómatana í sneiðar, raðið þeim á brauðin og látið eina ostræmu yfir. Bakið
brauðin í vel heitum ofni þar til fleskið er stökkt. Alh. Brauðin verða bragð-
meiri ef flesksneiðin er smurð með sinnepi áður en henni er vafið um ostinn.
Blaðlaukssúpa meS ostabrauSi
2— 3 blaðlaukar
2 msk smjörliki eða jurtaolía
IV2 l kjötsoð (grœnmetissoð eða vatn)
kjötkrajtur, salt og pipar ejtir bragði
Skerið blaðlaukinn í þunnar sneiðar og hitið hann síðan í feitinni þar til fer
að sjatna í pottinum. Bætið soðinu (vatninu) saman við og kryddið eftir
bragði. Sjóðið i 15—20 mín. og látið þá 1—2 msk. af cerry í súpuna ef vill.
Einnig má þá jafna súpuna með eggi eða rjóma. (Sem er þá látið í súpuskálina
og súpan lirærð þar saman við smátt og smátt). Á meðan súpan sýður eru
hveitibrauðsneiðamar smurðar, rifnum osti stráð jafnt yfir sneiðamar og þær
bakaðar í ofni við góðan hita. Súpunni er ausið vel heilri á diskana og ein
ostsneið látin á hvern disk.
Ef súpan er borin fram í skálum sem þola ofnhita eru brauðsneiðarnar látnar
á botninn í skálunum, súpunni hellt varlega yfir, þá fljóta sneiðarnar upp.
Síðan er hún hituð í ofni þur til osturinn er hæfilega bakaður.
Nautakjötssúpa með spaghetti
300—400 g nautakjöt
3— 4 gulrœtur
2 piparhulstur (spánskur pipar)
2 msk smjörlíki
IV2 l vatn
salt og sellerisalt ejtir bragði (kjötkraftur)
150 g spaghetti cða makkarónur
2 msk söxuð steinselja
Skerið kjötið í smáa bita, gulræturnar í þykkar sneiðar og pipnrinn í lengjur.
Hitið kjötið og grænmetið í smjörlíkinu án þess að brúna það. Bætið heitu
soði eða vatni saman við og kryddið eftir bragði. Sjóðið i V2—1 klst. Spag-
hetti er soðið með síðustu 15 mín. Saxaðri steinselju er bætt í súpuna áður en
hún er borin fram.
Gott er að hafa grænar baunir í þessa súpu, þá eru þær lagðar í bleyti yfir
nótt og soðnnr með.
Túnfisksalat
1 salathöjuð
1 dós túnfiskur
6 soðnar, kaldar kartöflur
2 harðsoðin egg
8 tómatar
60