Samvinnan - 01.04.1971, Síða 32
2197’ SAM
VINNAN
ÍSLAND
ÁRIÐ 2000
Jóna
Sigríður
Þorvaldsdóttir.
heimurinn verður gagnvart
okkur? Ég á von á, að þriðji
heimurinn hafi vaxið svo mik-
ið, bæði að fólksfjölda og kröf-
um um eitthvað til handa sjálf-
urn sér, að umræðan muni ekki
snúast um það, hvað við ætlum
að gera gagnvart börnum okk-
ar, öðrum þjóðum og svo fram-
vegis.
Bjarni Bragi: Það eru nú bara
getspár. Við þurfum að hugsa
um okkar þarfir líka, og það er
verið að tala um þær hér.
Geir: Umræðan á að vera eins
víðtæk og kostur er.
Hildur: Ég held að við verðum
ekki i þeirri mótandi aðstöðu,
sem okkur finnst við vera i.
Baldur: Er þetta ekki líka
spurning um það, hvernig ein-
staklingurinn getur lifað innan
þjóðfélagsins?
Geir: Gætirðu ekki lýst því sem
fyrir þér vakir svolítið nánar,
Hildur?
Hildur: Einhvernveginn finnst
mér, að það verði svo mikill
þrýstingur frá þriðja heimin-
um til að endurheimta sjálfum
sér til handa það sem til þarf
að lifa sjálfstæðu menningar-
lífi, og að hann muni neita
að apa ævinlega eftir okkur þá
menningu sem við höfum
þvingað uppá hann. Við þving-
um þriðja heiminn inní sér-
staka menningarfarvegi. íbúar
hans eiga að álíta það gott sem
okkur finnst gott, þeir eiga að
fara sömu leið og við í tækni og
allri þeirri félagslegu hugsun
sem byggist á tækninni. Ég
held að þriðji heimurinn muni
neita þessu, og að öll hugsun
eftir tvo til þrjá áratugi muni
snúast um afstöðuna til þessa
máls.
Baldur: En munum við ekki
líka taka meira upp eftir öðr-
um kynþáttum? Mér dettur til
dæmis í hug, að á síðustu ára-
tugum hafa svertingjar kennt
okkur, að við höfum líkama og
getum hreyft okkur, finnum
hljómfall og annað þessháttar.
Fer það ekki svo, að við förum
að leita að dýrinu í sjálfum
okkur?
Bjarni Bragi: Ég tek undir
þetta. Negrarnir gættu þess-
arar geymdar fyrir mannkynið.
Við höfum gætt ákveðinnar
geymdar. Indverjar hafa til
dæmis gætt mjög merkilegrar
geymdar. Ég held það séu ýkj-
ur, að Vesturheimur sé svo
ákaflega sólginn í að fá þriðja
heiminn til að apa sínar lífs-
venjur umfram það sem hon-
um er hollt, þó hann sé að apa
vestrænt hátterni. En mér
skildist þvi væri haldið fram,
að þjóðir þriðja heimsins
mundu hindra okkar valfrelsi
í að sinna eigin þörfum. Um
það er spurt.
Sigurður: Að þær mundu
heimta stærri part af kökunni.
Steingrímur: Þvinga þær okkur
félagslega og manninn i hans
þróun, þó að þær vilji ekki
semja sig að okkar háttum?
Þorbjörn: Einsog sakir standa
byggist velmegun okkar að
töluverðu leyti á því að við
arðrænum vanþróaðar þjóðir.
Þegar ég segi „við“, á ég við
Vesturlönd fyrst og fremst.
Þessar arðrændu þjóðir eru að
vakna upp við vondan draum
og munu ekki sætta sig við
ríkjandi ástand.
Sigurður: Við skulum taka
Kína með i myndina. Kina er
sennilega eina ríkið i þriðja
heiminum sem hefur staðfast-
lega og í öllum greinum neitað
að fylgja þeirri fyrirmynd, sem
talað var um áðan. Þeir gera
sína menningarbyltingu og
ætla sér að búa til annarskonar
„módel“ en það sem Vesturlönd
bjóða uppá. Þetta „módel“
þeirra er síðan farið að hafa
áhrif hér fyrir vestan, og það
finnst mér vert fyllstu íhug-
unar.
Bjarni Bragi: Ef menningar-
byltingin er nokkuð, þá er hún
sú ofboðslegasta gróðursetning
abstrakt hugmynda i þjóð-
menningu, sem hún afneitar.
Sigurður: Ef þú átt við að
kommúnisminn, sjálf hug-
myndafræðin sé aðflutt, þá er
það vissulega rétt, en menn-
Geir: Gætum við ekki einbeitt
okkur svolítið meira að spurn-
ingunni um mannlegar þarfir,
skoðanir, hugsjónir árið 2000?
Sveinn: Sé litið á þessi þrjú
atriði, þá held ég að það verði
einkanlega tvennt sem geri það
að verkum, að það verði tals-
verð breyting frá því sem nú
er. í fyrsta lagi verði mun
stærri hluti þjóðarinnar mun
betur menntaður en nú er og
betri almenn menntun verði i
landinu. í öðru lagi held ég,
að obbinn af íslendingum verði
kominn i þá aðstöðu efnahags-
lega, að hann þurfi ekki að
leggja eins hart að sér til að
sinna frumþörfum einsog þeim
að koma yfir sig þaki. Það
verði semsé orðið fortíðarfyrir-
bæri að menn ofgeri sér eða
jafnvel drepi sig á húsbygging-
um. Afleiðingin ætti að verða
sú, að einstaklingurinn verði
mun opnari og umburðarlynd-
ari gagnvart meðbræðrum sín-
um og samborgurum, og að at-
hyglin muni beinast frá því
þrönga umhverfi, sem okkar
ingarbyltingin sjálf er áþreif-
anleg kínversk staðreynd, sem
á sér ekki hliðstæðu eða fyrir-
mynd í neinu öðru landi.
Þorbjörn: Má ég aðeins vikja
að því sem við Hildur vorum
að tala um? Við getum séð
fyrir okkur í Suður-Afríku nú,
hvernig prýðilega menntaðir
og gefnir hvítir menn neita að
horfast i augu við, að hverju
stefnir. Þeir reisa stöðugt fleiri
múra umhverfis sig. Þeir ganga
vopnaðir dagsdaglega, bæði
konur og karlar; þeir reisa
járngrindur umhverfis hús sin;
þeir útiloka svertingja frá að
umgangast hvita hópinn. Við
getum vel hugsað okkur, að
þetta eigi eftir að gerast á al-
heimsmælikvarða, ef við erum
svartsýn. Ég held að þetta sé
ekkert fáránlegur samanburð-
ur, vegna þess að aðstæður eru
svipaðar milli tækniþróaðra
landa og vanþróaðra annars-
vegar og hvitra manna og
svartra í Suður-Afríku hins-
vegar. Ég held að við getum
meira að segja litið á Efna-
hagsbandalag Evrópu sem lið í
þessari þróun: það sé skref í
þá átt að byggja sér heim þró-
aðra landa gegn vanþróuðu
löndunum.
eigið þjóðfélag er, að öðrum
þjóðum, og þannig munum við
fá miklu meiri samkennd með
umheiminum. Þá gæti þróunin
orðið sú, að við reyndum að
nota okkar afgangsorku til að
hjálpa þeim þjóðum sem
skemmra eru á veg komnar.
Jónas: Ég vil taka undir það
sem Sigurður sagði: Ég álít að
framtíðin muni bera það með
sér, að möguleikar verði miklu
meiri innan þjóðfélagsins fyrir
hvern einstakling til að haga
sér og hugsa einsog honum
sjálfum sýnist. Hann má vera
sérvitur, hann má vera sósíal-
isti, hann má byggja sér timb-
urkofa, hann má yfirleitt haga
sér hvernig sem honum bezt
þykir, án þess að konformist-
arnir, meðalmennin, fái þving-
að hann í þennan farveg eða
hinn. Ég held lika, að það verði
konunni, einnig húsmóðurinni,
miklu auðveldara að leggja útá
þær brautir sem hún hefur
helzt löngun til. Með hverju
árinu sem líður eigum við eftir
að taka síaukinn þátt i hinni
Mannlegar þarfir,
skoðanir, hugsjónir
32