Samvinnan - 01.04.1971, Side 36

Samvinnan - 01.04.1971, Side 36
að tala um atvlnnulýðræði einsog það er tíðkað og menn eru að burðast við að túlka það í öðrum löndum. Baldur: Ekki í Júgóslavíu. Þorbjörn: Eftilvill ekki i Júgó- slavíu. Ég hafði hana ekki í huga. En ég held að þetta at- vinnulýðræði sé algerlega ó- hugsandi við önnur skilyrði en þau að jafnframt sé um að ræða eignarhald á atvinnufyr- irtækjum. Það sýnir okkur þá svart á hvítu, að ef á að vera eignarhald á einstöku fyrir- tæki, þá getur hvenær sem er myndazt yfirstétt. Atvinnulýð- ræði er með öðrum orðum ekki hugsanlegt, held ég, nema þar sem er þjóðareign framleiðslu- tækj anna. Baldur: Ég er sammála því, að fullkomið atvinnulýðræði er ekki fyrir hendi nema með því að þátttakendurnir eigi og stjórni fyrirtækjunum. Andri: Það sem Helgi minntist á áðan er mikilvægt mál, þ. e. a. s. hvað verði um þá treg- greindu í framtíðarþjóðfélag- inu. Áttirðu þá við þau 2—3% sem allra treggreindust eru, oft af líkamlegum orsökum, eða áttirðu við 10—12—14%? Helgi: Já, frekar síðarnefnda hópinn. Andri: Já, þar er ég að vissu leyti svartsýnn. Ég get að vissu leyti tekið undir með þér um, að þessir einstaklingar séu í vissri hættu með að geta ekki fylgzt með, en hinsvegar er ástæða til meiri bjartsýni held- ur en undanfarin reynsla í menntamálum íslendinga og nágrannaþjóðanna virðist gefa tilefni til. Námsárangur þessa fólks virðist geta batnað mjög mikið með gerbreyttum kennsluaðferðum, og það fer Hildur: Ég ætlaði aðeins að víkja að listinni, afþví það er búið að tala svo mikið um hana, og þá jafnframt að slá svolítið á bjartsýnina. Mig langar bara að minna á forsíð- una á þessu hefti sem umræða okkar á að birtast í. Geir: Spurningarmerkið? Hildur: Nei, en alla þessa sem svartsýnir voru, vegna þess að þegar maður talar um fagur- fræði i listum, þá er maður að hugsa aftur til miðalda, þegar María mey var máluð í falleg- alls ekki eingöngu eftir skipt- ingunni í verknám og bóknám, heldur virðist vera hægt að ná mjög sæmilegum árangri í að kenna þessu námsfólki til dæmis eitt erlent tungumál, ef við gerum ekki meiri kröfur en þær, að það verði fært um að tjá sig á mjög einföldu máli og skilja einfalt mál. Ég legg áherzlu á það, að greindar- vísitöluhugtakið gamla er orð- ið úrelt. Fræðimenn eru alveg að leggja það niður og tala í staðinn um greindarprófíla eða annað slíkt. Þar sem þeir eru mældir er reynt t.d. að nota þá sem leiðarvísa til að þroska það sem bezt er. í sambandi við skólamál held ég annars almennt að vænta megi þess, að árið 2000 hafi mjög skerpzt andstæður, sem þegar má greina, a. m. k. í ýmsum háþróuðum iðnaðar- þjóðfélögum í kringum okkur. Ég á hér við, að átök aukist milli þeirra, sem vilja umfram allt að skólakerfið skili þjóð- félaginu arði og mennti fyrir störf þau, sem þjóðfélagið tel- ur þurfa að vinna, og svo hinna, sem vilja að hver nemandi, hver einstaklingur ráði því sjálfur, hve mikið og á hvern hátt hann bergir á mennta- brunni þjóðarinnar. Þessi átök verða sennilega orðin mjög skörp um 1980—1985, og ég ótt- ast að þau muni þá enn halda áfram að aukast. Einhverskon- ar málamiðlun virðist nauð- synleg í þessu sambandi, eigl skynsemi að fá ráðið og ör- væntingarbaráttu af hálfu beggja aðila að verða afstýrt. Geir: En heldurðu ekki að árið 2000 hafi þessar andstæður verið yfirstignar og það fyrir þó nokkru? Andri: Nei, það tel ég alltof mikla bjartsýni. um litum. Hafi menn fylgzt með því sem gerzt hefur á síð- ustu árum og er enn að gerast, þá hefur listin alls ekki tekið þessa bjartsýnu afstöðu. Það er kannski til eitthvað sem heit- ir handmennt eða föndur, sem fólk hleypur í og dundar sér við, en listin hefur ekki tekið jákvæða afstöðu, einsog greini- lega sést af þessu dæmi sem Sigurður minntist á. Geir: Er þetta ekki lika spurn- ing um visst þunglyndi, ákveð- ið menningarlegt þunglyndi sem meðal annars stafar af mjög óhollum lifnaðarháttum og einnig af vissum „menning- arsjúkdómum", svosem ofbeldi og öðru sliku, sem fær afskap- lega mikla útbreiðslu fyrir tilverknað fjöldaframleidds skemmtiefnis og fjölmiðla. Við getum bara haft í huga glæpa- myndafaraldurinn og ýmislegt af því tagi, sem er útaf fyrir sig ákaflega fáránleg þróun: hversvegna skyldi einmitt vera lögð svo rík áherzla á þessa neikvæðu þætti? þrýstihópar Baldur: Ég geri mér vonir um að stjórnmálaflokkarnir á ís- landi breytist á næstu 30 árum. Nú eru þeir valdatæki ákveð- inna einstaklinga og þröngra hagsmunahópa, en ég vona að þeir þróist í lýðræðislegri átt og verði raunveruleg baráttu- tæki fólksins í landinu. Þróun á þessu sviði hefur verið mjög hægfara, en ég held hún verði örari í framtiðinni. Steingrímur: Ég get tekið und- ir það með Baldri, að þróunin á þessu sviði hefur verið afar hæg á undanförnum árum. Við erum ennþá að burðast með allskonar hugsjónir og isma, sem eru löngu úreltir og tefja fyrir framförum. Ég held að þróunin fari aðallega í tvo far- vegi, þó flokkarnir verði eftil- vill margir. Annarsvegar verða þeir sem vilja halda í iðnþró- unina eða „iðnaðarþjóðfélagið“, einsog fræðimenn kalla það, eða tæknivaldið sem likast því sem það er núna; þeir vilja semsagt halda þessari vél gangandi umfram allt og leggja höfuðáherzlu á þjónustu við hana og undirgefni. Þó er ég sannfærður um að þeir munu láta mikið undan. Hinsvegar held ég að stór hópur manna muni meta mannlifið á dálít- ið annan veg, einsog hér hefur verið rakið. Þeir vilja ganga lengra en hingaðtil hefur verið gert í ýmsum velferð- armálum, vilja að þjónusta hins opinbera á hinum nýju nauðsynjasviðum, einsog trygg- ingum, heilsuvernd, menntun og þessháttar, verði miklu víð- tækari en hingaðtil. Ég held að þessi hópur leggi jafnframt ríka áherzlu á það, að maður- inn verði frjálsari, að hann verði ekki bundinn á neinn klafa einhvers múgþjóðfélags; Bjarni Bragi: Listamenn eru auðkenni en ekki spámenn. Hildur: Þeir eru bara hluti af öllu saman. En þið töluðuð um þetta einsog afskorinn hlut, fagurfræði sem væri stunduð einhversstaðar ein sér, en listamenn eru i ákaflega nán- um tengslum við veröldina og samtímann og spegla hann og túlka. Bjarni Bragi: Við vorum ekki að tala um listamenn, heldur útrás hjá fólki. Og ég held að einstaklingarnir vilji fá að vera frjálsari og verði frjálsari. Þeir vilji fá svigrúm til að þroskast og skapa, en krefjist jafnframt mikils af hinu opinbera í sam- eiginlegri þjónustu. í þessu sambandi er enn mörgum spurningum ósvarað. Geir: Má ég skjóta hér inn spurningu um orðalag. Getum við kallað bessa seinni þjóð- félag~ge 3 til dæmis fjölþátta (plúralískt) þjóðfélag, mann- úðlegt, sem ekki væri miðstýrt, heldur hið gagnstæða, en fyrri gerðin yrði það sem við höfum búið við: stigveldi eða híerar- kískur strúktúr. Steingrímur: Jú, þetta er alveg rétt, en ég vil leggja áherzlu á, að ég held að stigveldið hverfi frá kapítalismanum sem hug- sjón. Það verður ekki auðvalds- fyrirkomulag. Bjarni Bragi: Mig langar að- eins til að benda á það, að ef menn vilja auka eitthvað, sama hvort það er þjónusta eða vöru- framleiðsla, þá verða menn að leggja áherzlu á hagræðingar-, hagvaxtar- og framleiðnimark- miðið, að minnstakosti í þeim greinum sem eiga að skila þeim mannafla sem nauðsynlegur er til aukningar. Steingrímur: Hagfræðingar verða áreiðanlega ekki úreltir. Bjarni Bragi: Það er ekki það sem fyrir mér vakir. Ég er bara að vara við ósamræmi í þeim málflutningi að vilja mikið, en bara af einhverju öðru. Það kallar samt á áframhaldandi betri nýtingu. Andri: í sambandi við stjórn- mála- og þrýstihópa í framtíð- Listir 36

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.