Samvinnan - 01.12.1972, Síða 23

Samvinnan - 01.12.1972, Síða 23
og minntu á, að sú bygging, sem hér um ræddi, þyrfti svigrúm, er hæfði eðli hennar og hlutverki. Þeir lögðu ennfremur áherzlu á, að tekið yrði frá land sunnan safnsins við Birkimel vegna stækkunar þess síðar og tryggilega búið um, að því landrými yrði ekki ráðstafað á annan veg. Byggingar norðan safnsins milli þess og Hringbrautar töldu þeir ekki koma til greina, og ætla yrði næg bílastæði í ná- grenni safnsins, en hafa þau ekki alveg ofan í því. Um íþróttavöllinn sögðu þeir að lok- um, að hann hlyti að víkja, þegar bók- hlaðan væri komin upp. Hún mundi að vísu standa utan endimarka vallarins, en ónæðið af honum yrði eðlilega meira en svo, að völlurinn og safnið gætu átt þarna samleið til frambúðar. Á fundi borgarráðs 30. júlí 1971 var lögð fram umsögn borgarlögmanns og borgarverkfræðings, dags. 30. júlí 1971, um staðsetningu bókhlöðubyggingar á horni Birkimels og Hringbrautar, og féllst borgarráð á umsögnina. í umsögninni var lagt til, eins og áður hefur komið fram, að samþykkt yrðu fyrirheit um allt að 20.000 m2 lóð á þessum stað. í smágrein um útsýni segir svo að lokum: Útsýni Útsýni úr bókhlöðunni verður tvi- mælalaust tilkomumest til norðurs, og reynir á, að það verði nýtt sem bezt eftir því, sem það samrýmist tilgangi og gerð hússins að öðru leyti. Helztu þarfir I öðrum aðalkafla forsagnar er rætt um helztu þarfir. Er hér gert ráð fyrir, að bókakostur safnsins verði um 550 þús. bindi, þegar tekið verður til starfa í hinni nýju bókhlöðu, en sá bókakostur, sem ástæða þykir til að hafa að tuttugu árum liðnum undir einu þaki, verði um 850 þús. bindi. Þegar fram í sækir, verður f emur spurt um það, hve góður bóka- kosturinn sé, en hve mikill hann kunni að vera. í grein um lesendur er gert ráð fyrir, að lessæti verði 675 við opnun safnsins, en unnt verði á næstu tíu árum að fjölga þeim í eitt þúsund. Ekki er nú ástæða til að ætla, að vikið verði til stó:ra muna frá þessari ráðagerð. Vér verðum auðvitað að gera það upp við oss, hve mörg lessæti vér ætlum að hafa til reiðu samanlagt i hinu nýja safni og einstökum deildum og stofnunum Há- skólans. Ætlum vér að hafa eitt sæti handa hverjum tveimur, þremur eða fjórum stúdentum að meðaltali? Hve nærri getum vér farið um stúdentafjöld- ann á 9. tug aldarinnar? Hljóta ekki að vera takmörk fyrir því, hve marga vér getum teygt út á háskólabrautina, þó að sú leið sé um hríð talin hin eina sálu- hjálplega? Er nokkur von til, að allur sá fjöldi, sem nú er við háskólanám bæði heima og erlendis, geti fengið stöður að námi loknu, hvað þá heldur, þegar stúd- entafjöldinn verður að tíu árum liðnum orðinn helmingi meiri en hann er nú, standist nýjustu spár um það efni. Hvað sem þessum hugieiðingum líður, spennum vér bogann örugglega ekki of hátt, þótt vér reisum þjóðarbókhlöðu þá, er hér um ræðir, og höfum hana eðlilega vel við vöxt. Hún mun, þegar hún kemst upp, verða til mikillar eflingar íslenzk- um rannsóknarbókasöfnum í heild, veita Háskólanum og öllum deildum hans og stofnunum þá þjónustu, sem hann þarfn- ast svo mjög, að ógleymdu þjóðbóka- safnshlutverkinu, sem rækt verður eftir sem áður og njóta mun einnig góðs af þeirri nýskipan mála, sem stefnt er að. Reynsla annarra þjóða sýnir, að öfl- ugt miðsafn er vænlegasta lausnin, einkum þar sem ekki er um stórsöfn að ræða. En víkjum nú að helztu eiginleikum hinnar nýju bókhlöðu, eins og þeim er lýst í margnefndi forsögn: 1. Sveigjanleiki. Unnt verður að vera að breyta fvrirhafnarlítið og með sem minnstum tilkostnaði bókageymslurými í lestrarrými eða öfugt. Til þess að það sé fært, þarf bókhlaðan að vera að einhverju eða öllu leyti með svokölluðu mátasniði (e. modular plan- ning). 2. Hnitmiðun rýmis, svo að notendur safns og starfslið þurfi ekki að ganga langar leiðir. 3. Leiðir til allra átta i bókhlöðunni þurfa að vera beinar og greiðfærar. 4. Leiðir frá anddyri til helztu deilda safnsins og frá þeim aftur til anddyris verða að blasa við. 5. Verði sú bókhlaða, sem nú skal reisa, siðar stækkuð, svo að hún verði eftir sem áður eitt hús, verða þeir þættir starf- seminnar, sem mest eiga fyrir sér að Safnahúsið við Hverfisgötu, reist árið 1908. JlU || II || II ■Sfi IfU » *s, iiif i ii *i o ii ii« «i m ' l ym 15
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.