Samvinnan - 01.12.1972, Qupperneq 29

Samvinnan - 01.12.1972, Qupperneq 29
Hvernig hús? Þeim sem mest fjalla um bókasöfn, byggingu þeirra og skipulag, kemur sam- an um, að ekkert eitt safn eða ákveðin lausn sé fundin, sem hentað geti öllum bókasöfnum. Hvert safn þarf að aðlaga venjum og erfðum eins lands, bókakosti, umhverfi og fjárráðum. Bókasöfn hafa fyrir mörgum þjóðum um aldir verið byggingar sem mikið er lagt í með tilliti til reisnar í útliti og varðandi allan innri búnað. Speglast hér virðing manna fyrir skáldskr^ og mennt, fyrir bókinni. Ýmislegt styður það að þjóðarbókhlað- an megi í útliti eða innra andrými vera viss táknmynd eða varði, þó að aðbún- aður bóka, starfsliðs og notenda sé auð- vitað meginþáttur og ráði mestu um mótun hússins. Þetta tvennt getur farið ágætlega saman. Nokkuð ljóst má vera, að í safni, sem á að varðveita handrit og bókagersemar þjóðarinnar, þarf að gera miklar kröfur til tæknibúnaðar, svo sem loftræstingar, hita, lýsingar, örygg- is, burðarvirkis o. s. frv. Slíkir þættir geta orðið mótandi um uppbyggingu safnsins, ásamt þeim öðrum þörfum, er hér hefur verið drepið á. í áætlun forsagnar, eins og hún lítur út nú, er gert ráð fyrir, að bókhlaðan rúmi um 850.000 bindi, sæti séu fyrir 830 gesti og starfslið sé um 70 manns. Er þá reynt að áætla um það bil 20 ár fram í tímann, frá þvi að húsið er tekið í notkun, og ganga þannig frá öllum hnútum, að auðvelt verði að stækka húsið að þeim tíma liðnum, eða þegar þörf krefur. Staðsetning Við staðsetningu þjóðbókasaíns þarf á sama hátt og við allt innra skipulag að taka tillit til hins tvíþætta hlutverks safnsins. Vegna tengsla við Háskólann þarf það að liggja vel við þeim, sem þar starfa og nema, um leið og það sem þjóð- bókasafn þarf að tengjast öðru lífi borg- arinnar og vera sú varða, að hver sem þangað þarf að leita svölunar á þorsta í fróðleik eða fagurdýrkun geti fundið, án villu eða hrakninga. Staður, sem fullnægt getur þessum þörfum, er einhvers staðar á snertifleti lóðar Háskólans og miðborgar. Eins og áður hefur komið fram, eru megineinkenni safns sem þessa, að vöxt- ur er mjög ör, og þarf lóðin því enn einum þætti að fullnægja: að stækka megi húsið auðveldlega. Mjög gjarna skal bókasafn liggja ótruflað af mikilli óvið- komandi umferð eða öðrum hávaða. Fal- legt útsýni er æskilegt og gefur mögu- leika á tilbrigðum í andrými hinna ýmsu deilda og starfssvæða. Vandfundinn er sá staður að allir þessir þættir séu leystir til fullnustu, en lóð sú sem húsinu er ætluð leysir þá marga. Er það meðal verka, sem fram- undan eru, að samræma staðsetningu hússins, vaxtarmöguleika, aðkomu o. s. frv. áætlunum þeirra, er með skipulags- mál Háskólans fara og kvöðum og kröf- um borgarskipulagsins. Sfarfshópurinn Hér hefur margsinnis verið nefndur starfshópur sá er undirbúa skal og teikna þjóðarbókhlöðuna. Hann skipa auk okk- ar ýmsir þeir aðilar, sem áður eru nefnd- ir, ásamt tækniráðgjöfum, sem ráðnir voru að verkinu strax á undirbúnings- stigi, og voru þá þegar settir inn í meg- inþætti þarfa. Þeir eru: Bragi Þorsteinsson og Eyvindur Valdi- marsson verkfræðingar varðandi burð- arþol. Verkfræðiskrifst. Guðmundar Björns- sonar og Kristjáns Flygenrings varðandi hita og loftræstingu. Sigurður Halldórsson rafmagnsverk- fræðingur varðandi lýsingu. Reynir Vilhjálmsson garðarkitekt varð- andi lóð og umhverfi. Þessi starfshópur hefur tekið að sér að skapa þjóðarbókhlöðunni þann ramma, er hæfi henni vel. Hefur rú sam- vinna þegar staðið hluta þessa árs og lofar góðu hvað snertir sameiginlegan vilja til að vinna þessu verkefni vel. Verksvið okkar arkitektanna er fólgið í samspili fagurfræði og notagildis. Ekki þarf að verða árekstur milli þessara tveggja sviða, og tryggir gott samstarf arkitekta, bókavarða og annarra ráð- gjafa slíkt. Hér gildir, að hver aðili geri sér grein fyrir starfssviði hins, reyni að skilja vandamál hver annars og séu þess full- komlega meðvitandi, að þeir eru að vinna að sama takmarki. Framlag hvers og eins er þýðingarmik- ið í heildarmyndina, og gangi framhald verksins, sem hingað til, í góðri sam- vinnu og skilningi allra aðila, er að verk- inu standa, þá þarf engu að kvíða um þá þjóðarbókhlöðu, sem nú er í mótun. 4 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.