Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Qupperneq 9
83
leyti, áður valið Odd Jónasson, verzlunarmann á
■ Akureyri, og felst fundurinn á það og væntir þess
að stjórnarnefndin geri sitt ýtrasta til þess, með
símtölum við Sláturfjelag Suðurlands, að koma
því til leiðar, að það fjelag samþykki þetta val og
því næst að leita samþykkis stjórnarráðsins um
manninn og erindisbrjef hans.«
II. »Fundurinn telur nauðsynlegt að stjórn Sambands-
ins feli erindisrekanum að undirbúa sem bezt og
svo fljótt sem verða má hagkvæm kaup erlendra
vara fyrir fjelögin og koma fram með sem fyllst-
ar upplýsingar í þeim efnum.«
III. »Fundurinn telur rjett að árslaun erindisrekans þ.
á. verði miðuð við fullkomið starfsár, þó eigi sé
tekið til beinna starfa fyr en um þessar mundir, því
aðsetursundirbúningur í byrjun er ætíð svo dýr, og
nú kemst erindisrekinn eigi hjá því að hafa að-
stoðarmann í næstu kjötsölutíð. Felur því fundur-
inn framkvæmdarstjóra að fá því framgengt að
landssjóðsstyrkurinn þ. á. miðist eingöngu við
framlög samvinnufjelaganna, innan hinna heimil-
uðu takmarka í fjárlögunum.«
IV. »Fundurinn fellst á að laun erindisrekans sjeu
greidd beint af sjóði Sambandsins, en hins vegar
afli Sambandsstjórnin sjóðnum tekna með hæfi-
legu hundraðsgjaldi af vörum þeim, sem erindis-
rekinn hefur með höndum fyrir fjelögin eða aðra,
samkvæmt heimild fjelagsstjórnarinnar.«
V. »Engar nánari tillögur vill fundurinn gera um
heimfærslu sjerstakra atriða undir staflið »b.« í 8.
gr. erindisbrjefsins, heldur telur að stjórnir fjelag-
anna verði þar úr að skera í samráði við erindis-
rekann, og eptir þeirri reynslu, sem fæst við fram-
kvæmd starfsins.«
21. Samþykkt að næsti aðalfundur Sambandsins verði