Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Blaðsíða 27
Ýmislegt frá útlöndum, m. fl.
I. Samvinnufjelagsskapur með bygging íbúðarhúsa.
Á þetta atriði var nokkuð minnst í Tímaritinu f. á.
(bls. 41—42). Síðan hefur þessari stefnu miðað vel áfram.
Pó svona framkvæmdir sjeu ekki heimfæranlegar til sveita-
býla hjer á landi, kynnu þær að geta átt við í kauptún-
um okkar, að einhverju leyti. Fróðlegt er það einnig og
hvetjandi, að sjá þess ný og ný dæmi, hversu vel stefna
samfjeláganna gefst, nærri því að segja á hvaða sviði
sem er. Þetta nýja dæmi sýnir hve mikið má spara af
því, sem annars gengur til milliliða, umboðsmanna og
sjerstakra fjesýslumanna, en sem samlagsmenn geta lagt
til hliðar og á þann hátt tryggt framtíð sína, aukið efni
sín og dagleg lífsþægindi.
í Marzmánuði 1912 var í Höfn stofnað samvinnufjelag,
sem nefnist »Byggingarfjelag verkamanna*. Tilgangur
fjelagsins er að byggja góð og holl íbúðarhús, fyrir
hæfilegt verð, handa efnaminni borgurum, og komast
þannig hjá verðhækkun þeirri, sem annars fylgir íhlutun
ágóðafýkinna gróðabrallsmanna í þeirri grein.
Fyrsta húsið, sem fjelapið Ijet byggja, var fullgert seint
í Október f. á. Það er fimmlypt og hefur rúmgóðar
nýtízkuíbúðir fyrir 47 fjölskyldur. Leigan er 26 — 42 kr.
á mánuði, fyrir þessar fjölskylduíbúðir, og á neðsta lopti
hefur kaupfjelagið »Godthaab« tvær sölubúðir. Þetta