Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Blaðsíða 45
Harðasti bardaginn í þessu efni, sem háður hefur
verið á Norðurlöndum, stendur nú sem hæst yfir. Ann-
ars vegar er hinn öflugi sementshringur Norðurlanda, en
hinns vegar stendur fjöldi af samvinnufjelögum í Dan-
mörku. Sementshringurinn, með fylgismönnum sínum,
hefur beitt í málinu öllum þeim andróðri og bardaga-
brögðum með fyllstu frekju, sem lýst hefur verið hjer að
framan, og ekkert látið ógert af sinni hálfu til þess, að
jafna hervirki óvinanna með jörðu. En hingað til hafa
herskeyti hringsins ekkert unnið á, en virkin hafa verið
treyst enn betur og verða bráðlega aukin til muna. Um
bardagalokin er enn eigi hægt að segja neitt ákveðið.
En vissa er fyrir því, að bandamenn eru með óbilaðan
áhuga og virðast harðna við hverja árás sem gerð er.
Tildrögin og byrjunin er á þessa leið:
Sementshringurinn hefur, í allmörg undanfarin ár, haft
hjer um bil allan sementstilbúning og sölu hans með
höndum í Danmörku og alímikið til annara landa.
Eins og vanalega gerist, þegar svona stendur á, varð
varan óhóflega dýr og öllum þeim, sem því urðu að
sæta, þótti þungt að búa undir einveldisyfirráðunum.
Pað var því víða talsverður áhugi fyrir því, að koma upp
samkeppnisstofnun og losa til um yfirráð hringsins. En
lengi sat þetta við lauslegt umtal og máttlausar bolla-
leggingar, svo ekkert varð af framkvæmdum. Sambands-
kaupfjelagið, sem útvegaði kaupfjelagsdeildunum sement,
og tók hann í stórkaupurh eins og fleiri vörur, gerði
samning við sementshringinn í ársbyrjun 1911, að taka
þar allt það sement næstu 5 ár, en deildirnar pöntuðu
hjá Sambandinu, og sem vanalega var ‘afarmikið. Sam-
bandið fjekk því loforð um talsverðan afslátt, frá því
almenna verði sem yrði á sementi á hverjum tíma.
En strax á eptir að þessi samningur var undirritaður,
hækkaði hringurinn almenna verðið um 50 aura á hverri
tunnu, sem þá einnig náði til þess er Sambandið keypti.
Hringurinn Ijet það uppi um leið, að þetta væri gert í