Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Blaðsíða 48
122
manna með öllum útbúnaði kostaði 1 mil. og 200 — 300
þús. kr. Þessi verðlækkun átti að vera rothögg á nýju
verksmiðjuna eða að minnsta kosti koma í veg fyrir
það, að hún gæti veitt nokkurn ágóða. En það er ekk-
ert útlit fyrir að þetta ætli að lánast. Verksmiðjar* starf-
ar með fullum krapti og getur vel fylgzt með þessu
niðursetta verði. Stórskeyti þetta frá hringnum hafði
því aðallega þær verkanir, að nú fyrst varð mönnum
fyllilega Ijóst, hvílíkt ránsverð hafði áður verið hjá hringn-
um á þessari vöru, og þá hlaut áhugi manna að fara
vaxandi fyrir því, að styðja þá stofnun sem sparaði land-
inu 6 mil. kr. á einu ári, að eins á þessari einu vörutegund.
Sement bandamanna reynist mjög góð vara, og er þar
því ekki hægt að koma með neinar árásir. En þó svo
færi að sementshringurinn lækkaði söluverðið enn meir
hjá sjer, eru litlar líkur til að bandamenn gefizt upp,
enda þótt svo færi, að þeirra sement yrði dýrara, um
tíma, af því hinir seldu sjer í skaða. Peir mundu telja
víst að slíkt stæði ekki lengi, ef ekki er látið undan síga.
Annaðhvort yrði hringurinn að hækka verðið aptur, von
bráðar, eða þá hætta við framleiðsluna. Petta virðist
einnig liggja í eðli málsins: Sementsverðið hjá fjelagínu
ætti þó allt af að verða mun lægra en áður, eða ann-
ars hefði verið kostur á. Og hinir mörgu kaupendur
mega vera ánægðir með þann mælikvarða. Þeir ættu
þá og að þola það vel, þó varan sje lítið dýrari, um tíma,
en annars kynni að vera kostur á. Þetta geta hinir mörgu
vel þolað, sem reka allt annað starf sem aðalatvinnu.
En einkafyrirtæki einstaklinga þola það aldrei, ótakmark-
aðan tíma, að selja allt af í skaða. Af hversu mikilli
efnafúlgu, sem vera kann að taka, hlýtur hún þó að
þrjóta um síðir, ef allt af er meira og minna tap á fyrir-
tækinu, og út í þá ófæru leggur enginn skynsamur og
hagfróður maður.
En á hinn bóginn má ganga að því vísu, að falli
þetta fyrirtæki bandamannanna, svo sementshringurinn