Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Blaðsíða 37
111
Sjálandssambandinu hafði miklu minna farið fram og á
árinu 1896 runnu bæði samböndin í eitt, mest fyrir for-
göngu Severins, enda var hann kosinn formaður. Fyrsta
sameinin^arárið (1896) var viðskiptaveltan 4,176,072 kr.
og árságóðinn 107,766 kr. En árið sem leið (1913) var
viðskiptaveltan 61,999,490 kr. og árságóðinn 3,048,009
kr. Á þessum 17 árum hefur því viðskiptaveltan fimmtán-
faldast. Eignir Sambandsins nema nú mörgum miliónum
kr. og fjelagið er nú langstærsta verzlunarsambandið á
Norðurlöndum.
En, það eru ekki að eins þessar síhækkandi tölur í
verkahringnum, sem vekja aðdáun okkar, — því margur
hefur náð saman miliónum í seinni tíð á stuttum tíma,—
heldur tilgangurinn og örðugleikarnir á því, að ná til-
ganginum. í þessu tvennu felst mikilhæfi mannsins, sem
um er að ræða. Tilgangur miliónamæringa nútímans er
að hefja sig yfir fjöldann, auðga sjálfa sig persónulega,
breikka biiið milli auðugra og snauðra og ná sem mestu
drottinvaldi yfir mönnum, og sem flestum meðölum að
tignartróni. Alveg gagnstætt öllu þessu fólst í tilgangi
Severins, eins og hjá hverjum öðrum sönnum samvinnu
og umbótamanni nútímans, og þarf þá eigi mótsetning-
unni frekar að lýsa.
Örðugleikarnir voru piiklir og margvíslegir. Innan
verkahringsins var skilningsskorturinn, þröngsýnið, sín-
girnin, tortryggnin og fleira af sama bergi brotið. En þess
er vert að geta, að Severin hafði og marga góða liðsmenn
í umbótastarfinu, sem skildu hann, trúðu honum og
veittu á allar lundir aðstoð sína. Severin kom einmitt
fram á vakningartímabili sinnar þjóðar, á vordegi, þegar
jarðvegurinn var víða móttækilegur fyrir nýjan gróður.
Annars hefði sannast á honum: »Enginn má við
margnum«.
Ytri örðugleikarnir voru á allar hliðar, svo að segja:
hæðni, tortryggni og stöðugar árásir á stefnuna og störf-
in. En allt þesskonar Ijet hann ekki á sig fá, heldur
8*