Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Qupperneq 23
97
skólum sínum, kennurum, fyrirlestramönnum, ríkisbygg-
ingum o. s. frv. Ríkið ætti að nöta pakkapóstinn, þegar
hann kemst í gang, til að senda bókasöfn út um landið í
lestarfjelög bænda. Pað verður að taka þátt í því að
þurka upp landið og byggja vegina. Pað ætti að koma
á fót heilbrigðismáladeildum og fá sjerfræðinga til að
líta eptir nógu og góðu vatni. Rað ætti að sjá um öfl-
ugt eptirlitskerfi á öllum sviðum, sjá^um flokkun og
mat á vörum bænda, eins og nú á sjer stað í sumum
ríkum. í raun og veru verður ríkið að vaka yfir því,
að engir þegnar þess eða vissir flokkar leggi álögur á
aðra, enda þó um stutt tímabil sje að ræða.
Verzlunarog iðnaðar »klúbbar« verða
' Fyrirkomulag. að myndast meðal bænda og annara
starfshyggjumanna í nálægum kaup-
túnum, til að innleiða alúðarsamvinnu milli allra flokka,
hjeraðinu til heilla. Bændur verða að sameina krapta
sína til að stunda framleiðslu og ýmislegt annað í fjelags-
skap. Sameiginlegur fjelags »klúbbur« ætti að vera
fyrir pilta og stúlkur til að taka þátt í kappræðum, og
ræða ýms ádeilumál. Kvennfólksklúbbar ættu einnig að
komast á fót, þar sem kvennfólk gæti lagt stund á ýms-
ar listir, bókmenntir, kvennlegar hannyrðir, fatasaum og
almennar heimilisumbætur.
Regar allt þetta hefur fengið umbætur og náð fullkomn-
un, munu sveitirnar í öllum verulegum atriðum geta
jafnazt á við borgirnar og hafa þó ýmislegt fram yfir
þær, t. d. heilnæmi sveitaloptsins og fagurt hjeraðsútsýni,
sem borgarbúar verða sjaldan aðnjótandi.
Mr. George W. Russel, sem árið 1909 var fenginn til
að halda fyrirlestur í írska akuryrkjufjelaginu »Building
up of a rural Civilization« talar meðal annars um frum-
dyggðir þær, sem almennt sjeu meiri upp til sveita en í
borgunum. Lýsir hann þar vexti borganna og málar
upp kosti þeirra og ókosti. Hann segir meðal annars:
»Allt af verður vart við þetta sama í öllum úthverf-