Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Blaðsíða 39
113
varaformaður nokkurn tíma og haft fleiri trúnaðarstörf
Sambandsins með höndum. Bera fjelagsdeildir, almennt,
gott traust til hans. Að endingu skulu hjer tilfærðar
nokkrar setningar úr erindi Severins til fulltrúaráðsins,
þar sem hann beiðist lausnar frá formannsstarfinu.
»Jeg hef ekki tekið þessa ályktun án þess að athuga
hana vel, bæði fyrir sjálfan mig og málefnið sjálft. Eigin-
lega finnst mjer ekki að kraptar mínir hafi þverrað svo,
þess vegna sje nauðsynlegt að jeg beiðist lausnar þegar
í stað. En þar á móti er mjer fullljóst að misræmi er í
því, hversu hinn stöðugi vöxtur og þroski fjelagsins
heimtar meiri krapt og starf af hálfu formannsins, og
hinu, að með vaxandi aldri munu hæfileikar og kraptar
aðalleiðtogans smám saman þverrá, ef jeg held áfram.
Það er samt engan veginn meining mín, að hætta öllum
störfum fyrir Sambnadið. Nei, starfið fyrir dönsku kaup-
fjelögin, hollan þroska þeirra og íramfarir er orðið mjer
að lijstakmarki, og jeg gæti ekki hugsað mjer að lifa
ánægður án þess að taka þátt í því, og ef til vill get
jeg með þessu móti einmitt starfað lengur og meira í
þeim atriðum, sem jeg hygg að jeg hafi frekast hæfileika
fyrir. Jeg óska því að starfa sem óbreyttur liðsmaður
framvegis. Auðvitað mun jeg styðja nýja formanninn.
eptir megni, ,án þess að skuldbinda mig ti! ákveðinna
fastra starfa.
Jeg vil ekki reyna að telja yður trú um, að metnaður
minn sje svo lítill, að jeg sje jafn glaður, eptir sem áður,
við þá breyting á stöðu minni, að sleppa forstöðu á
stærstu verzlunarstarfsseminni sem nú er til í Danmörku.
Jeg segði ósatt, ef jeg segði að jeg kynni ekki að meta
þann heiður. Og það er, ef til vill, að nokkru leyti
metnaðamál fyrir mig, að beiðast nú lausnar. Mjer er
það Ijóst, að þó ekkert sjerlegt komi fyrir, er aldri mín-
um svo farið, að eigi getur orðið um langt tfmabil að
ræða, þangað til jeg verð að sleppa forstöðunni, þegar
kraptarnir þverra. Og það væri dálítið viðkvæmt fyrir