Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Síða 47

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1914, Síða 47
121 var líkast því, að gulllykill hringsins hefði gengið þar um til að loka, en ekki opna, sem þó er almennt talið einkenni á gulllyklum. Einn banki vildi að vísu lána með því skilyrði, að ágóðanum væri skipt eptir hluteign, en ekki eptir viðskiptum. En með því hefði verið brotin helzta frumregla samvinnufjelaga, og að því vildi fjelagið vitanlega ekki ganga. Pannig gekk nærri því heilt ár í þetta þóf og sementsskatturinn nýji rann stöðugt inn í aukasjóð hringsins. Yms fjelög lögðu fram fje og lán- uðu fje og nam það 400 þús. kr., og loks lánaði Revi- sionsbankinn 600 þús. kr., þá var hægt að byrja á bygg- ingunum þó rekstursfjeð vantaði - 200 — 300 þús. kr. — Rekstursfjeð lögðu síðan fjeíögin fram, svo ekki hefur staðið á því. í Júlímánuði 1913 byrjaði svo tilraunastarfsemi banda- manna í nýju byggingunum. Verksmiðjan hefur haft nóg að gera síðan, og ekki getað fullnægt öllum pönt- unum. Á ársfundi fjelagsins í Nóvember f. á., var búizt við að stækka byggingarnar, svo hægt væri að framleiða 300 þús. tunnur á ári. Framleiðslukostnaður verksmiðj- unnar er rúmlega 3 kr. fyrir hverja tunnu, en fjelagið á- ætlar að hann þurfi ekki að fara fram úr 3 kr., þegar búið er að koma öllu vel fyrir. Sementshringurinn taldi nú að Sambandsfjelagið hefði rofið gerðan samning, en það varði sig með því, að deildirnar pöntuðu nú eigi lengur sement hjá sjer, og samningurinn næði eigi til annars en deildapantana. Við það situr. En svo kemur allramarkverðasta atriðið í öllu þessu stríði. í Janúar auglýsti formaður gamla sementshringsins, að hver sementstunna frá hringnum þ. á. yrði seld á kr. 4.10 í staðinn fyrir kr. 6.45, sem var verðið árinu áður. Verðfallið er því kr. 2.35 á hverri tunnu. Samanlagt er talið svo að sementshringurinn framleiði árlega 2.6 mil. tunna af sementi. Verðlækkunin á þessu: kr. 2.35 nem- ur samtals 6,110,000 kr., en sementsverksmiðja banda-

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.