Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Blaðsíða 89
Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
83
um atriðum fjöldi frjálslyndra gjörbótamanna. peir áttu
nokkur ítök í öllum stéttum, en einkum hjá fræðimönnum.
Búauðgiskenningin var í tölu hinna nýju hugsjóna, er beint
eða óbeint bjuggu jarðveginn undir frönsku stjórnarbylt-
inguna, þótt sumir af forkólfum hennar væru í raun réttri
ekki andvígir einveldinu. Búauðungar höfðu án efa víðtæk
áhrif á umbótalöggjöf franska þingsins á næstu árum eft-
ir stjórnarbyltinguna. Skattalöggjöfin ber vott um það.
Voru gerðar stórfeldar breytingar á skattamálum ríkisins
Mörgum beinum og óbeinum sköttum var létt af þjóðinni.
í stað þess var lagður hár skattur á a’lar jarðir. Á fyrsta
þinginu eftir fall einveldisins sátu margir einlægir fylgis-
menn þessarar stefnu, t. d. Mirabeau greifi. Faðir hans
var aldavinur Quesnay og hafði varðveitt rit hans frá
glötun.
Búauðgiskenningin var of einhliða og í ýmsum atrið-
um fjarstæð veruleikanum. Einkaskatturinn var lítt notað-
ur og hvarf mönnum úr sýn. Adam Smith og samherjar
hans fluttu mönnum ný fræði um auð og vinnu. þeir höfn-
uðu kenningu búauðunga í þessu efni, en héldu um langt
skeið uppi merki þeirra að því er snerti atvinnufrelsi og
frjálsa samkepni.
Eins og áður er sagt, börðust búauðungar fyrir frelsi
bændastéttarinnar, vöktu áhuga fyrir ræktun landsins og
verklegum framkvæmdum í sveitum. Áhrifa þeirra á rétt-
arbætur síðari tíma hefir einkum gætt á þessu sviði. Marg-
ir þeirra manna, er á síðasta fjórðungi 18. aldarinnar og á
fyrri hluta 19. aldar unnu að því að afnema bændaánauð-
ina, og beittu sér fyrir umbótum í sveitum, höfðu orðið
fyrir áhrifum frá þessari stefnu. í öllum verulegum atrið-
um hafa kröfur þeirra að þessu leyti náð fram að ganga.
Á Frakklandi var bændaánauðinni létt af að mestu leyti
við stjómarbyltinguna. í Danmörku seint á 18. öld. í öðr-
um löndum hér í álfu var henni létt af á síðustu öld, eða
gerð mun vægari en áður, svo sem í Rússlandi. Réttarbæt-
ur þessar voru einkum í því fólgnar, að átthagafjöturinn
og skvlduvinnan var afnumin, herskylda og skattar lagðir
6*