Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Síða 99
Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
93
efnið í líkömum manna, dýra og jurta. Viðfangsefnið verð-
ur hér æ flóknara, einkum þegar kemur að lífrænni efna-
fræði. þaðan er ekki nema stutt skref yfir í sjálfa líf-
fræðina.
Á dögum Comtes uppgötvuðu náttúrufræðingar frum-
una, eða hið lifandi hvolf, sem er nálega eins í mönnum,
dýrum og jurtum. Sú uppgötvun bygði brú á milli lækn-
isfræði, dýrafræði og grasafræði, sem áður sýndust fjar-
skyldar þekkingargreinar. Líffræðin nær yfir öll þessi
svið. Hún útskýrir hin sameiginlegu einkenni alls sem lifir.
þegar þess er gætt, að öll læknis- og sjúkdómafræði, öll
heilsufræði og uppeldisfræði verða að byggja á niðurstöð-
um líffræðinnar, sést hvílíka geysiþýðingu fyrir mannkyn-
ið er að allri aukinni vísindalegri þekkingu á þessu sviði.
Efsta deild mannlegrar þekkingar var að dómi Comtes
félagsfræðin, sú vísindagrein, er hann taldi sitt megin-
hlutverk að skapa. Félagsfræðin nær yfir öll mannleg við-
skifti, frá því að tvær manneskjur taka höndum saman til
að vinna verk, sem einum er ofvaxið, og alt til stærstu
ríkja, þar sem miljónir manna mynda félagsheildina
(Rómaveldi, kaþólska kirkjan). Margar gamlar fræði-
greinar, saga, þjóðafræði, lögfræði, heimspeki, siðfræði og
hagfræði eru hver um sig aðeins einn þáttur mannlífsvís-
indanna. Félagsfræðin á að ná út yfir öll mannleg sambönd,
finna og útskýra náttúrulögmál mannlegrar þróunar og
réttrar hegðunar.
Ein af meginskýringum Comtes er sú, að hver fræði-
grein komist því fyr á vísindastigið, sem viðfangsefni
hennar er einfaldara og ósamsettara. Stjörnufræðin varð
þessvegna fyrst vísindaleg. Lögmál hennar voru léttfund-
ust og auðskýrðust. En félagsfræðin kemur seinast í röð-
inni. þar er viðfangefnið fjölbreytilegast og sundurleitast.
Hver manneskja er lítill hlekkur í þeirri miklu keðju. Mis-
munandi eðli, þarfir, kröfur og mentun manna gera fram-
komu þeirra, er margir vinna saman, torskylda og lögmál
mannlífsins ekki auðfundin.
Síðari helmingurinn af hinu mikla höfuðverki Comtes