Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1997, Blaðsíða 100

Andvari - 01.01.1997, Blaðsíða 100
98 AÐALGEIR KRISTJÁNSSON ANDVARI mæli Bjarna Thorarensens í útgáfu Bókmenntafélagsins áður en hann féll frá og það eignaðist upplagið af ljóðmælum Jónasar Hallgrímssonar litlu síðar. Hann mátti einnig lifa þann hörmulega atburð þegar upplag þessara kvæða brann ásamt mörgu öðru af bókum og skjölum félagsins. Rúnaraunir Finnur tók sæti í Árnanefnd árið 1822 og 1829 varð hann ritari nefndarinn- ar. Árið eftir varð hann félagi í Vísindafélaginu danska og Danske Selskab. Eftir hann liggur ógrynni greina um hin ólíkustu efni í blöðum og tíma- ritum sem nú liggja grafnar og gleymdar. Einstaka halda samt enn gildi sínu, t. a. m. grein um verslun Englendinga á íslandi á 15. öld og þann möguleika að Kolumbus hafi komið hingað til lands 1477. Rúnakveðskapur færði Finni frægðarorð ungum að aldri, en rúnaráðn- ingar reyndust Finni viðsjálar áður yfir lauk. Þeir sem kannast á annað borð við nafn hans tengja það jafnan við ófarir hans í þeim fræðum. Sú saga er í stuttu máli á þessa leið: Runamo er örnefni í Blekinge í Svíþjóð. í Danmerkursögu Saxa frá urn 1200 lýsir hann langri rúnaristu á láréttum klöppum. Þar þóttust menn greina höggvin tákn í dökkan berggang. Saxi hermir svo frá að Haraldur konungur hilditönn hafi látið letra í klappirnar frásögn af hetjudáðum föð- ur síns. Valdimar I. Danakonungur lét rannsaka staðinn en án árangurs. Samt héldu menn áfram að kanna Runamo sem svo var nefndur á máli al- þýðu. Ole Worm, danskur fornfræðingur, lét rannsaka staðinn árið 1627. Sá sem það gerði gat nær ekkert lesið og lét svo um mælt að rúnaletrið væri máð og nær ólæsilegt. Samt þóttist hann finna fjögur rúnatákn. Sænskir og danskir fornleifafræðingar urðu einnig frá að hverfa án árangurs. Þeirri kenningu óx fylgi að „risturnar“ væru gerðar af sjálfum höfuðskepnunurn. Á síðari hluta 18. aldar og í upphafi hinnar 19. átti hún vaxandi fylgi að fagna. Þannig stóðu sakir þegar Finnur kom til skjalanna. Hinn 19. ágúst 1833 skrifaði hann Bjarna Þorsteinssyni hvernig það bar til: í sumar hefi eg [. . .] verið á flakki, fyrst til Fjóns, [. . .] seinna til Runamo í Bleking,1 Svíaríki, fyrir Vísindafélagið, til að skoða rúnir þær er Saxo segir að Haraldur hildi' tönn hafi látið þar úthöggva, en hvörjar seinustu lærðir ferðamenn meintu eður sögðu vera lusum naturæ (meðal þeirra Cynicus Arndt, eftir hvörjum þér líklega munið) - en það reyndist þó ei svo; samt eru þær mjög bágar aflestrar, eins og þ®r þegar voru í tíð Valdemars lta, og er ei heldur þá á öðru von.65 Tildrögin að rannsóknarför Finns til Runamo voru þau að P. E. Muller
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.