Andvari - 01.01.1997, Side 118
116
ÁRMANN JAKOBSSON
ANDVARI
Komdu, litla Lipurtá!
langi þig að heyra
hvað mig dreymdi, hvað eg sá
og kannske sitthvað fleira.
Ljáðu mér eyra.
Litla flónið, ljáðu mér snöggvast eyra:
Þar er siglt á silfurbát
með seglum þöndum,
rauðagull í rá og böndum,
rennir hann beint að ströndum,
rennir hann beint að björtum sólarströndum.
„Þar situr hún móðir mín“
í möttlinum græna,
hún er að spinna híalín
í hempu fyrir börnin sín.
„Og seinna þegar sólin skín,“
sendir hún þeim gullin fín,
mánasilfur og messuvín,
mörgu er úr að velja.
Hún á svo margt, sem enginn kann að telja.
„Þar sitja systur."
Sá sem verður fyrstur
að kyssa þeirra klæðafald
og kveða um þeirra undravald,
honum gefa þær gullinn streng
á gígjuna sína.
„Ljúktu upp Lína!“
Nú skal eg kveða ljúflingsljóð
um lokkana þína,
kveða og syngja ljóðin löng
um lokkana mjúku þína.
„Þar sitja bræður“
og brugga vél,
gakktu ekki í skóginn, þegar skyggir.
Þar situr hún María mey,
man eg hvað hún söng:
Eg er að vinna í vorið
vetrarkvöldin löng.
Ef að þornar ullin vel
og ekki gerir stórfelld él,
sendi eg þér um sumarmálin sóley í varpa.
Fögur er hún Harpa.
Um messur færðu fleira,
fjólu og músareyra,
hlfðunum gef eg grænan kjól,
svo göngum við upp á Tindastól,
þá næturvökul sumarsól
„sveigir fyrir norðurpól",