Andvari - 01.01.1953, Page 9
andvari
Gunnlaugur Claessen
5
unar á vegum Háskólans. Gekk hann svo greiðlega, að stofn-
unin gat tekið til starfa þegar upp úr nýári 1914. Þegar lækningar
með radium hófust hér 1. júlí 1919 — en forgöngu fyrir félags-
skap áhugamanna um fjársöfnun til kaupa á radium hafði Gunn-
laugur haft — varð hann einnig forstöðumaður þeirra. Þegar
Landsspítalinn tók til starfa, var ein deildin þar, röntgendeildin,
ætluð röntgen-, radium- og ljóslækningum, og varð Gunnlaugur
að sjálfsögðu yfirlæknir þar (frá 1. jan. 1931). Upp frá því hélt
hann fyrirlestra fyrir stúdentum í læknadeild Háskólans um
geislalækningafræði og leiðbeindi þeim um röntgen- og ljós-
lækningameðferÖ sjúklinga. ÁSur hafði hann haft á hendi
kennslustörf í KfeÖlisfræÖi við læknadeildina (árin 1914—1918
og 1923—1926). Árið 1928 var honum veitt doktorsnafnbót við
Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Var doktorsritgerð hans um
röntgengreiningu sullameina (The Roentgen-Diagnosis of
Echinococcus Tumors) og hlaut mikið lof. Lltan fór hann mörg-
um sinnum endranær til að kynna sér nýjungar í geislalækning-
um og Ijóslækningum, og segir dr. Gísli Fr. Petersen í minn-
mgargrein, er hann ritaði um dr. Gunnlaug í Læknablaðið og
síðar verður hér víðar vitnað til, að allt það, sem hann kynntist
og til framfara horfði, hafi verið notfært þegar í stað. í sumum
þessum ferðum sat hann þing geislalækna sem fulltrúi Islands,
þar á rneðal þing norrænna geislalækna í Stokkhólmi 1923 og
alþjóðaþing geislalækna í London 1925, er hann ritaði urn bæði
skemmtilegar og fróðlegar greinar í Læknablaðið.
Gunnlaugur kvæntist 16. október 1914 Þórdísi, dóttur Björns
Jenssonar kennara við Menntaskólann í Reykjavík, bróðursonar
Jóns forseta Sigurðssonar, sem öllum íslendingum er jafnan
minnisstæður. Var heimili þeirra hið prýðilegasta, og hjálpuðust
hjónin að því með hispursleysi sínu og heillandi viðmóti að gera
gestum, sem að garði bar, dvölina þar ánægjulega. Þau eignuðust
tvær dætur, sem báðar eru giftar í Kaupmannahöfn.
Dr. Gísli Fr. Petersen, núverandi yfirlæknir við röntgendeild
Landsspítalans og þar á undan aðstoðarlæknir þar og samstarf§-