Andvari - 01.01.1953, Blaðsíða 62
58
Magnús Már Lárusson
ANDVARI
reistar og fallið og jarðvegur aukizt og hækkað. Öskuhaugar liafa
fyllt lægðir og kvosir. Túnbleðlar hafa verið ræktaðir. Og brátt
varð Brennuhellir mun meira áberandi kennileiti á staðnum en
hjallamir vestast á Sandi. Og víkin með gulhvítu sandfjömna
varð þannig Hellissandur.
Nú á dögum er aðeins ein kirkja á svæðinu milli Beruvíkur-
hrauns og Ennis. Stendur liún að Ingjaldshóli. Þar hefur staðið
sóknarkirkja síðan á dögum Ama biskups Helgasonar. Hann
vígði nýgjörða sóknarkirkju þar hinn 13. október árið 1317, að
því er talið er i Fornbréfasafninu, þótt ártalið gæti einnig verið
1308. Vígsluskráin sjálf getur ekki ársins.
Vígsluskráin segir svo frá, að þar hafi áður verið bænahús,
en Gunnar bóndi Hauksson lét gjöra kirkju, er herra Ámi
vígði in festo reliquiarum, Guði til lofs og dýrðar og hans sign-
uðu móður jungfrú sancte Marie og heilögum píslarvottum Cosme
og Damiano og öllum heilögum mönnum.51)
Cosmas og Damian voru bræður, er uppi voru á þriðju öld
eftir Krists burð. Þeir voru læknar og trúboðar og liðu píslar-
vættisdauðann í Kilikiu í Litlu-Asíu, líklega árið 303. Justinian
fyrsti (527—65) reisti kirkju þeim til dýrðar í Miklagarði og Felix
páfi fjórði (526—530) aðra í Róm. Messudagur þeirra er hinn
27. september. Þeir Cosmas og Damian eru einkum vemdardýrl-
ingar lækna og lyfsala, en hvort það hafi ráðið um val þeirra
sem kirkjudýrlinga að Ingjaldshóli skal ósagt. Saga þeirra hefur
ekki varðveitzt í norrænu, og helgun kirkjunnar að Ingjaldshóli
mun vera eins dæmi.
Vígsluskráin tekur mjög náið til um réttindi og skyldur kirkj-
unnar og kirkjubóndans að Ingjaldshóli. Kemur þar fram, að
prestur muni ekki vera þar að staðaldri, heldur muni presturinn
að Saxhóli sjá um alla þjónustu. Hvomg kirkjan er þó alkivkja,
sem sést af skiptingu messudaga milli kirknanna.
í vígsluskránni eru ákvæði um kaup prestsins og önnur Ivlunn-
indi. Eitt ákvæði er þar merkilegt. Svo stendur, að greiða eigi
til Fróðárkirkju 10 aura á ári hverju í fríðu eða skrcið eða öðr-