Andvari - 01.01.1953, Blaðsíða 13
andvari
Gunnlaugur Claessen
9
sulla vegna ófullkominnar röntgentækni, eða gert inn í hægra
lunga gegnum þindina. Enn segir hann frá röntgengreiningum
dr. Claessens á sullum í beinum. — Heildardómur próf. Forsells
um rit dr. Claessens um röntgen-, radium- og ljóslækningar er
sá, að þau sýni „bæði þekkingu höfundarins, nákvæmni og
ágæta dómgreind, en jafnframt hve geislalækningar eru full-
komnar í Reykjavík".
Meðal starfa Gunnlaugs Claessens á geislalækningasviðinu
voru geitnalækningar hans, og þeim var aftur tengd barátta hans
fyrir því, að geitnasjúklingunum yrði gert kleift að njóta lækn-
inganna, með því að styrkja þá til að standast kostnaðinn, sem
þær höfðu í för með sér. Lækningar á geitum með röntgengeisl-
um hafði hann byrjað þegar 1915 og fengið góðan árangur. En
honum varð æ Ijósara, að mörgum, líklega miklum meiri hluta
geitnasjúklinga, væri ekki kleift að notfæra sér þær fyrir fá-
tæktar sakir. Hann taldi því miklu varða, að þeim yrði veittur
nauðsynlegur styrkur af almannafé til að standast lækninga-
kostnaðinn, og það því fremur sem margir þurftu að ferðast
langar leiðir og vera langdvölum frá heimili sínu til að geta
orðið lækningar aðnjótandi. En til þess að von gæti verið um,
a§ styrkur fengist, var undirbúnings þörf; meðal annars þurfti
að afla vitneskju um fjölda geitnasjúklinga á landinu. Tækifærið
gafst á aðalfundi Læknafélags íslands 1921, þegar Guðmundur
Hannesson bar þar upp og fékk samþykkta tillögu um, að heraðs-
læknar tækju upp samrannsóknir um ýmis heilbrigðismal. Nefnd
var kosin til að velja tvö fyrstu viðfangsefnin og vinna ur væntan-
legum skýrslum héraðslækna um þau, og hlutu kosningu i hana
Guðmundur Hannesson, Gunnlaugur Claessen og Guðmundur
Thoroddsen. Mun það hafa verið fyrir atbeina Gunnlaugs, að
annað verkefnið, sem nefndin valdi, var að safna skýrslum um
sjúklinga með geitur hér á landi. Seinna á árinu ritaÖi hann
stutta grein í Læknablaðið til leiðbeiningar um þessar rannsókn-
ir. Tilgang þeirra kvað hann vera, ,,að finna alla geitnasjúklinga
á íslandi og gera síðan ráðstafanir til að lækna þá, með öðrum