Andvari - 01.01.1953, Page 24
20
Sigurjón Jónsson
ANDVARI
„Þjóðinni lærðist fljótt“, heldur hann áfram, „aS meta gildi
þess, enda má fullyrða, að tímaritið hafi í höndum dr. Gunn-
laugs Claessens náð þeim tilgangi sínum að verða öflugur þáttur
í heilsuvemdarstarfseminni í landinu. — I greinum sínum reyndi
dr. Gunnlaugur Claessen að auka þekkingu landsmanna á holl-
um og heilbrigðum lifnaðarháttum, vekja áhuga þeirra á útrým-
ingu ýmissa sjúkdóma og óþrifakvilla og bægja frá þeim ýmsum
hindurvitnum og hleypidómum um heilsufarsleg málefni". Er
þetta hverju orði sannara, og á raunar við um ritstörf hans öll
á sviði heilbrigðisfræðslunnar. Þau bera og öll vitni um það, hve
sýnt honum var um að setja jafnvel flókin viðfangsefni frarn á
svo ljósan og auðskilinn hátt, að jafnvel þeim, sem enga þekk-
ingu höfðu fyrir á umræðuefninu, varð það ljóst og auðskilið.
Enn bera öll hans ritstörf hinni einstöku vandvirkni hans vitni,
því að ekki kastaÖi hann höndum til neins, sem hann vann. í
öllu, sem hann ritaði, birtist og sama prúðmennskan sem í dag-
fari hans. Víða var fræðslan krydduð góðlátlegri kímni, sem þó
gat verið neyðarleg stundum, er hann deildi á líkamlegan eða
andlegan óþrifnað, hvort heldur fastheldni landans við lúsina
eða hégiljur og öfgar í sumri svokallaðri heilbrigðisfræðslu, en
allt slíkt var snyrtimenninu og hófsmanninum Gunnlaugi Claes-
sen viðurstyggð. Og hans næma dómgreind gerði honum auðvelt
að koma auga á það, sem miður fór, og benda á leiðir til úrbóta,
þegar um slíkt gat verið að ræða.
Á stúdentsárum sínum í Kaupmannahöfn fékk Gunnlaugur
berklasnert í lunga og varð að liggja um tíma í heilsuhæli í Dan-
mörku. Tafði þetta nokkuð fyrir námi hans, svo sem nærri má
geta, en fulla bót þessa sjúkdóms hafði hann fengiÖ er hann
lauk embættisprófi. Eftir það mátti hann heita heilsugóÖur fram
undir sextugt, en síðustu 8 árin, sem hann lifði, var hann oft
sárþjáður af andarteppu (asthma), er hann fékk í svæsnum köst-
um, en bráði af á milli. Var sá sjúkdómur ættgengur í karllegg
í föðurætt hans. Urðu köstin þyngri og millibilin styttri eftir
því sem lengra leið á ævi hans, unz hráð lungnabólga, er hann