Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1953, Page 35

Andvari - 01.01.1953, Page 35
ANDVARI 31 Á mótum gamals tíma og nýs Vafalaust var hér rétt á litið, og ekkert er trúlegra en að stjórn- inni hefði tekizt að vinna hug á öllum erfiðleikum og koma þil- skipaútgerð hér við land örugglega á réttan kjöl svo sem hundrað árum fyrr en raun varð á, ef hún hefði fylgt nokkru fastara eftir, haldið nokkru lengur út og lagt meiri stund á að kenna íslenzk- um mönnum að fara með stórskip, stýra þeim og vinna á þeim, og gera þeim kleift að eignast þau og annast. Slíkt varð auðvitað ekki í skjótu bragði gert. Dani skorti ekki góða siglingamenn, en hvernig sem á því stendur, hafa þeim sjaldan heppnazt vel fisk- veiðar hér við land. Um íslendinga var þessu öfugt farið. Þeir voru fiskimenn góðir, en kunnu alls ekki til stjómar á stórskip- um, og svo er að sjá, sem þeir hafi verið ófúsir til að ráða sig á þilskip konungsverzlunarinnar, meðan þess var kostur, enda óvanir að sæta þeirri meðferð, sem erlendir skipstjórnarmenn töldu á þessum tímum sjálfsagt og nauðsynlegt að beita við skipshafnir sínar. Útgerð konungsverzlunarinnar stóð rúman áratug, 1776— 1787. Stunduðu veiðamar 10 skip á ári, er fæst var, en 42 skip, er bezt gerði. Höfuðútgerðarstöðin var í Hafnarfirði. Má af þessu táða, að forráðamenn konungsverzlunarinnar litu stórt á við- fangsefni sitt og höfðu trú á því, að hér væri til nokkurs að vinna. hví miður féll útgerð þessi niður 1788, er konungsverzlunin var lögð niður. Stjómin reyndi að vísu að laða kaupmenn til þess að halda þilskipaveiðum áfram með lyrirheiti um verðlaun, 10 rd. á lest hverja í skipi, er haldið væri út sumarlangt til fiskveiða, en slíkt har lítinn árangur. Kaupmenn munu yfirleitt hafa litið svo a> að hér væri til lítils hagnaðar að slægjast, enda væri reynslan sú af konungsútgerðinni. Langflestir fríhöndlunarkaupmennirnir voru danskir, og saga sjávarútvegsins hér við land upp héðan sýnir nógu Ijóslega, að lítillar forgöngu var að vænta úr hópi danskra kaupmanna um þessi efni. Fáeinar undantekningar, svo sem Henckel kaupmaður á Þingeyri og H. A. Clausen í Ólafs- yík, staðfesta aðeins þessa meginreglu. Hér urðu innlendir kaup- nienn að ríða á vaðið, enda naumast um aðra menn að ræða í landinu, er ráð ætti á fjármagni, sem hér heyrði til. 3

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.