Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1953, Page 65

Andvari - 01.01.1953, Page 65
ANDVARI Milli Beruvíkurhrauns og Ennis 61 þýðingu fyrir kirkjuna vestur á Snæfellsnesi. Munkar á Helga- felli leggja í stórfelld jarðakaup vegna skreiðarinnar, til þess að geta ávaxtað sitt pund sem örast og bezt, en bændur reisa kirkju. Maríukirkja á Saxhóli var vel búin að gripum á 14. öld. Hún á þá Maríulíkneski, sæmilegan kross, veggtjöld umhverfis sig alla, 2 klukkur, 2 altarisklæði og 2 dúka, kórkápu og slopp, reyk- elsisker og helgifána, messuþvottaskál og lespúlt. Ennfremur á hún 5 kýr, 1 ásauðarkúgildi og hundraðshest.60) I máldögum Saxhóls er það eftirtektarvert, að kirkjan er talin eiga 20 hundruð í heimalandi, en Jarðabókin telur jörðina vera 24 hundruð að stærð til tíundar.01) Þegar Saxhóll er seldur Helgafellsklaustri árið 1377 fyrir Vatnsholt, sem er talið 24 hundruð að dýrleika, eru greidd í milli ein 25 hundruð í lausafé og fríðu að auki.62) Það er því bersýnilegt, að Jarðabókin telur einvörðungu kaupa- hlutann í jörðinni. Er það nokkuð skringilegt, þar sem kirkjan hafði þá verið niðurlögð fyrir tæpri hálfri annarri öld. Heimaprest- ur átti að vera á Saxhóli og tók hann venjulegt kaup, fjórar merkur, auk smátolla. Llm Saxhólssókn hefur þegar verið rætt. Kirkja þessi var aftekin með sóknaskipun Páls Stígssonar árið 1563.63) Auk þessara tveggja sóknarkirkna var til forna bænhús að Ondverðarnesi. Voru því gefin 3 kúgildi árið 1500 í testamentis- hréfi síra Sigurðar beigalda Jónssonar í Hítardal, og virðist Stefán Jónsson biskup hafa sett ævinlega bænhússkyld þar samkvæmt þeirri testamentisgjöf. Áttu að syngjast þar 12 messur en gjald- ast hálf mörk presti í kaup.04) Bænhús þetta var aftekið með sóknaskipun Páls Stígssonar árið 1563. í Jarðabókinni segir urn bænhús þetta á þessa lund: „Hér segja rnenn bænhús hafi til íorna verið, og sjást nú litlar leifar grundvallarins. Elér eru og ornefni Bænhússbakki og Bænhússboði. Enginn minnist, að bæn- hús þetta hafi uppi verið.<<05) Bréf Páls Stíg ssonar höfuðsmanns urn sóknaskipun á Snæ- lellsnesi frá hinum 27. sept. árið 1563 gjörir allróttækar breyt- mgar víða. Á utanverðu Snæfellsnesi varð Fróðárkirkja alkirkja, en halfkirkjan að Mávahlíð var lögð niður og sóknin lögð til

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.