Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1953, Side 88

Andvari - 01.01.1953, Side 88
84 H. H. ANDVARI vonlegt er, „sumra svo seint á stundum", eins og skáldið kvað, en þetta mætti milda, draga sviðann úr þessari tilfinningu með því að gera sér ljóst, að vor er á íslandi síðari liluti vetrar, en ekki fyrri hluti sumars eins og á meginlöndunum, og haustið síðari hluti sumars, en ekki fyrri hluti vetrar. Geti menn öðlazt þennan skilning og samið sig að honum, verða menn síður fyrir vonbrigðum af sumrinu. Þá munu þeir reyna, að sumar- veður kemur með sumri, þó að mishlýtt geti verið auðvitað. Þá munu menn hætta því, sem mörgum verður nú, að heimta sumarveður áður en sumar er komið, en það er ekki annað en vitleysa eins og jafnan, er menn heimta það, sem engin tök eru á að láta í té. Það, sem hér hefir nú verið rætt um nokkuð um hríð, er, ef svo mætti segja, hin andlega hlið landkosta á íslandi. Hin efnalega hlið er ekki síðri, eins og áður hefir verið vikið að nokkuð. Gróðrarmold góðs jarðvegar er eigi að eins næg til í landinu handa þúsundum manna og aftur þúsundum til afnota, heldur einnig vel hæf til þess að rækta af margs konar fóður- jurtir handa hvers konar búpeningi: nautgripum, sauðfénaði, geitfé, hrossum og svínurn, og alifuglum: hænsnum, gæsum og öndum, til matvælaframleiðslu, og matjurtir ýmiss konar handa fólki að nærast á: hafra í grauta, bygg í bjór, rúg og jafnvel hveiti í brauð, baunir, jarðepli, rófur og kál og kryddjurtir 1 súpur og sufl og enn fremur mjög sennilega ávexti og ber 1 mauk og vín, ef menn leggja við gróðrarmagnið rétta rækt og geta neitað sér um þá ofrausn að svíða gróðurinn aftur af mcð eitri. Þá munu líka birtast duldir landkostir. Þess er að gæta, að gróður verður eðlilega meira „aukinn jarðarmagni", kjambetri, í svölu loftslagi en heitu vegna áleitni af andstæðingi hans, kuld- anum, er stælir lífsorkuna samkvæmt því lögmáli alls vaxtar, að örðugleikar að tilteknu marki efla krafta hans. Á hinn bóginn eru lækir og ár og vötn og firðir og flóar og straumar hafs allt fullt af fiski af fjölda tegunda, sem gaman er að veiða og eru afhragð til átu, ef réttilega eru verkaðar og reiddar til matar,

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.