Andvari - 01.01.1941, Blaðsíða 56
52
Jónas Jónsson
andv uu
iekendum. Bliun lét undan í fyrstu og beitti ekki hörðu, þó.að
við ofbeldi væri að eiga. Deyfð og doði færðist yfir atvinnu-
lífið. Samhliða því, að Þjóðverjar unnu að framleiðslu sinni
með ofurkappi, var tekjuhallarekstur í Frakldandi. Þegn-
skaparleysi kommúnista sást á því, að þegar þeir studdu ríkis-
sijórn, sem var fús að sinna umbótatillögum, þá skyldu þeir
heita ofheldi gagnvart henni þegar frá upphafi, berlega í því
skyni, að hún fengi af því álitshnekki. En með þessum hætti
gerði kommúnistaflokkurinn franski, sem stjórnað var frá
Rússlandi, tvennt í einu: jók lítilsvirðingu almennings á lýð-
veldinu og lýði’æðinu og gaf íhaldsmönnum Frakklands aukna
ástæðu til uggs um byltingu að rússneskum sið. En af því
leiddi aftur aukna hættu fyrir sjálfstæði Frakklands, ef marg-
ir áhrifamenn þokuðust nær Hitler og Mussolini, til að geta
því betur varizt innlendum andstæðingum.
VIII.
Nú hefur verið leitazt við að svara þeirri spurningu, hvað
olli hruni Frakklands vorið 1940. Það er kommúnisminn,
sem á þar meginsök. í tuttugu ár fá áróðursmenn Rússa
óhindrað tækifæri til þess að nota stórfé í Frakklandi til að
skapa byltingarhneigð í verkalýðnmn, m. a. með því að gefa
út stórhlöð með rússneskum fjárstuðningi. Hinn vaxandi
kommúnistaflokkur afneitar ættjörðinni og samstarfi við aðra
flokka. Hann lýsir yfir hatri sínu og óbeit á samlöndum sín-
um í öðrum flokkum. Kommúnistar láta hlöð sín og ræðumenn
lýsa glögglega, að tilgangur þeirra sé að hefja blóðuga innan-
landsstyrjöld, eftir fyrirmynd Lenins frá 1917. Engar dulur
eru dregnar á, að takmarkið sé að fylgja i öllu fordæmi læri-
feðranna rússnesku.
Menn eru ekki englar. Og í öllum löndum eru flestir menn
þannig gerðir, að ef þeim er hótað missi eigna og lífdaga, þa
rísa þeir til varnar. í öllum siðuðum löndum er sjálfsvörn i
lífsháska talin réttmæt, hverjir sem í hlut eiga
Efnamenn Frakklands — og þeir voru tiltölulega margir
risu til varnar. Þeir sögðu, að ef tilgangurinn væri sá að.drepa