Andvari - 01.01.1941, Side 96
92
Steinþór Sigurðsson
ANDVARl
Holtssandur er samkvæmt mælingum mínum um 1 milljón
fermetrar, og er þá aðeins talinn sá hluti hans, sem til næst
án þess að rutt sé ofan af honum. Sýnishorn þau, sem ég hef
tekið af sandinum, hafa enn ekki verið rannsökuð nema að
litlu leyti, en séu gæðin talin svipuð og Patreksfjarðarsands,
þarf um 60 000 rúmmetra af sandi í 25 til 30 þús. tonn af sem-
enti. Með þeirri framleiðslu á ári mundi 1,8 m þykkt lag af
sandinum endast í 30 ár. Má þó gera ráð fyrir því, að sandur-
inn sé töluvert þykkari, en úr því var ekki hægt að skera með
þeim tækjum, sem ég hafði kost á, því að þegar grafið var í
sandinn, kom vatn í holuna i 1—2 m dýpt.
Athuganir á leir til sementsframleiðslu hafa farið fram
samfara athugunum á kalksandinum. Meðal annars hefur nú
verið efnagreindur leir frá einum fundarstað í grennd við
Holtssand í Önundarfirði. Kísilsýrumagn í leirnum er ekki nóg
til þess að hann sé nothæfur til sementsframleiðslu ásamt
kalksandinum án íblöndunar kísilsýru, en hann er sízt lakari
en leirinn hér við Reykjavík, sem ráðgert var að nota 1936.
Eftir að skýrsla þessi var skrifuð, hefur Jóhannes Áskels-
son fundið nokkuð af kísiljörð á svipuðum slóðum, svo að
þarna eru nú efni til sementsframleiðslu, öli saman komin á
einum stað og nægileg til vinnslu í nokkra áratugi.
b) Rannsókn á fosfór í Mókollsdal. Fosfóráburður er ein
þeirra áburðartegunda, sem fluttar eru hingað til landsins.
Dr. Gruner hefur látið efnagreina leir fir Mólcollsdal í
Strandasýslu og fundið þar leir með 12,3% fosfórsýru.
Af leir þessum ættu 150 kg að jafngilda um 100 kg af super-
fosfati til áburðar. Guðmundur G. Bárðarson hefur ritað um
þetta i Náttúrufræðinginn, 1. árg. bls. 62.
Ekki var kunnugt um magn þessarar leirtegundar þar
vcstra, né það, hvar hana væri að finna. Vitað var þó, að hún
var í grennd við bleikjaholtið í Mókollsdal.
Rannsóknaráðið fékk því Jákoh H. Líndal á Lækjámóti
til þess að fara vestur, athuga jarðlagaskipan og taka sýnis-