Andvari - 01.01.1941, Blaðsíða 86
82
Steinþór Sigurðsson
ANDVARl
jarðveg. Má þannig taka sýnishorn úr mismunandi dýpt.
Skaftið á bornum er úr rörum, og má bæta við það eftir því,
sem með þarf.
í mýrum þeim, sem athugaðar hafa verið, hafa verið gerð-
ar horanir með 20 til 50 metra millibili, til þess að ganga iir
skugga um það, hve útbreiðsla mósins væri mikil og hve djúp-
ur hann væri. Enn fremur hefur verið gerður lauslegur upp-
dráttur af svæðinu og skýrt frá legu þess og stærð. Mónum
lir borholunum hefur verið blandað saman og gæði hans rann-
sökuð. Fæst þannig meðaltal af gæðum mósins í hverri mýri.
Að vísu er þetta tæplega fullnægjandi, ef um vinnslu í stór-
um stíl væri að ræða, því að mórinn getur verið mjög mis-
jafn í einni og sömu mýri, en þetta gefur gott heildaryfirlit
yfir gæði mósins á hverjum stað. Öllum athugunum frá hverri
sveit var safnað saman í eina skýrslu og hún send yfirvöld-
unum á staðnum.
Árangur þessara rannsókna er sá, að i mörgum héruðum
landsins er milcið af mó, sérstaklega vestan lands og norðan,
en einna minnst á Austfjörðum. Mórinn er yfirleitt frekar
öskumikill, miðað við það, sem er í nágrannalöndum okkar.
Þetta óvenjulega mikla öskumagn stafar sumpart af eldfjalla-
ösku, sem fallið hefur í eldgosum, og sumpart af því, hve hér
er mikil jarðvegsmyndun af uppblæstri (lössmyndun). Hefur
verið miðað við það, að sæmilega vel þurr mór hefði inni að
lialda 25% vatn, og er þá algengast, að öskumagnið sé milli
20 og 30%, en lífræn eða hrennanleg efni aðeins 45—55%,
iniðað við þyngd. Hitagildi mósins er þá um 2500—3000 hita-
einingar, en í kolum er samsvarandi tala 7000—8000. Bezti mór
hér hefur töluvert innan við 10% ösku og um eða yfir 4000
hitaeiningar, og jafnast hann fyllilega á við mó í öðrum lönd-
um.1) Sérstaldega er góður mór á Snæfellsnesi og sums staðar
á Vestfjörðum, enda hefur áhrifa frá eldgosum og uppblæstri
gætt þar minna en í flestum öðrum héruðum. I grennd við
1) í skýrslu iðnaðardeildar atvinnudeildar háskólans fyrir 1939 er sagt
nánar frá árangri efnagreininganna, en ekki hafa verið hirtar einstak-
ar rannsóknir.