Andvari - 01.01.1941, Blaðsíða 92
88
Steinþór Sigurðsson
ANDVARI
a) Rannsóknir Jóhannesar Áskelssonar. Fer hér á eftir iit-
dráttur i'ir skýrslu hans.
Á tveim síðast liðnum sumrum hef ég farið rannsóknar-
ferðir um nokkurn hluta Vestfjarðakjálkans, sérstaklega um
svæðið milli Skorarhlíða og Aðalvíkur. Ég hef gert mér far
um að afla mér sem gleggstrar vitneskju um magn, útbreiðslu
og vinnsluskilyrði þeirra jarðefna, sem á þessum slóðum finn-
ast og ætla mætti, að hagnýta megi. Jafnframt hafa rann-
sóknirnar verið alhliða jarðfræðilegs eðlis. Hér skal drepið
nokkuð nánar á Vestfjarðajárnið og kalksandinn, sem þar
finnst.
Vestjjaröajárnstr.inninn. Öll þau sýnishorn af Vestfjarða-
járnsteininum, sem ég hef skoðað og safnað, eru brúnjárn-
steinn og afbrigði af honum. Hann er samsettur úr frumefn-
unum járni og súrefni, en bindur auk þess í sér vatn, breyti-
legt að magni, eftir því um hvaða afbrigði steinsins ræðir.
Veðrað yfirborð hans er móbrúnt að lit, en i hreint brotasárið
er hann brún-svartur og með greinilegum málmgljáa. Eðlis-
þyngd hans er 4, eða liðlega það.
Það er að ýmsu leyti eðlilegt að kenna brúnjárnsfundar-
staði Vestfjarða við þrjú aðgreind svæði, Skorarhlíðar, Pat-
reksfjörð og Önundarfjörð. Á hinum tveim fyrr nefndu svæð-
um er vart um annað að ræða en járnmengaðan leirstein, er
fylgir surtarbrandslögum, en járnmagnið er þar svo lítið, að
varla mun þar verða um járnvinnslu að ræða á nokkurn hátt.
Verða þeir staðir ekki ræddir frekar hér.
Á þriðja svæðinu, fjöllunum umhverfis Önundarfjörð, hef
ég athugað og safnað brúnjárnsteini og járnblönduðum leir
frá allmörgum stöðum.
Járnsteinninn liggur þarna í molabergslagi, inniklemmdu
milli hamrabelta. Rönd þessa molabergslags gægist fram í
fjallahlíðunum viða umhverfis Önundarfjörð. Þar, sem til
jarðlagsins sést, en það er víða hulið af gróðri og skriðu-
hlaupum, er bygging Jiess alls staðar með svipuðum liætti.
Upp af Miðhrygg í sunnanverðu Eyrarfjalli, spölkorn utan
við Flateyri, er hábrún fjallsins 620 m yfir sjó. Efri partur