Andvari - 01.01.1941, Blaðsíða 19
AN'DVARI
Jón Ólafsson
15
gott og þarft mál, en þörfin fyrir byggingar- og landnámssjóð
væri þó meiri. Fjöldinn af híbýlum sveitanna væri svo miklu
lakari en í Reykjavík, að ekki væri berandi saman. Þessi var
skoðun hans, þingmanns Reykvíkinga. Árið 1927 vildi Jón
hækka framlag til landnámssjóðs úr 100 000 krónum, sem
farið var fram á, upp í 200 000 krónur, og mælti skörulega
fvrir þeirri tillögu. Farast þá andstæðingi hans í stjórnmálum,
Tryggva Þórhallssyni, þannig orð um hann: „Mér þótti mjög
vænt um að hlýða á ræðu hans og verða var slíks skilnings
af lians liálfu, kaupstaðarmanns og elzta útgerðarmanns í
deildinni“. Halldór Stefánsson, þingm. Norðmýlinga, sem var
flutningsmaður að þessu frumvarpi, segir, að málinu hafi „bezt
þokað áfram“ fyrir aðgerðir þeirra Jóns Ólafssonar og Jóns
Sigurðssonar (á Reynistað). Næstu ár var Jón framsögumaður
landbúnaðarnefndar neðri deildar í þessu rnáli og hélt þá mjög
fróðlega og rækilega ræðu um það. Hvatti hann þar mjög til
nýrra og meiri átaka í landbúnaði en áður höfðu verið.
Sundhallarmálið í Reykjavík bar hann mjög fyrir brjósti á
þingi og var flutningsmaður að tillögu því til framgangs.
Hér yrði of langt mál að telja upp öll þau þjóðþrifamál, er
Jón Ólafsson vann að á Alþingi. Störf hans að framgangi
ýmissa þeirra eru þó ekki skjalföst, því að honum þótti það
drýgra til sigurs að ræða um þau rólega utan þingfunda en
sækja fram með liáværu orðaskvaldri á deildarfundum.
í bæjarstjórn Reykjavíkur var Jón Ólafsson kosinn í janúar
1918 og sat í henni til 1934. Gaf þá aðeins kost á sér sem
■varamanni, eða það neðarlega á lista, að hann yrði ekki kosinn
nðalmaður. I bæjarstjórn lcvað mjög mikið að honum. Var
hann þar í hafnarnefnd flest eða öll árin og réð þar miklu.
í fjárhagsnefnd var hann lengi og ýmsum fleiri nefndum. Hann
hafði manna bezta þekkingu á atvinnumálum bæjarins og var
því jafnan áhrifamikill um stefnu bæjarstjórnar i þeim mál-
Var og samvinna hans við hina beztu menn bæjarstjórnar-
lnnar mjög góð. Þótti skarð fyrir skildi, er hann gat ekki
lcngur, vegna annríkis, gefið kost á sér við kosningar þar sem
nðalmaður. Pétur Halldórsson borgarstjóri segir ineðal annars