Andvari - 01.01.1941, Blaðsíða 49
ajjdvari
Hvað olli hruni Fralddands 1940?
45
anna og öreiganna, en lítt skipulagsbundin, sízt frá hálfu
verkamanna. Nokkrir draumlyndir hugsjónamenn höfðu ráða-
gerðir um, hversu unnt væri að koma á paradísarskipulagi í
hinum nýju kringumstæðum. En þeim tillögum var lítill gaum-
ur gefinn. Leið svo fram undir miðja 19. öld. Þrem árum
áður en Jón Sigurðsson mótmælti ofbeldi Dana við íslendinga
a þjóðfundinum 1851, hafði þýzkur Gyðingur, að nafni Karl
Marx, sem þá var í útlegð í Englandi, hirt skjal, sem síðan
hefur verið nefnt Ávarp sameignarmanna. Marx snýr sér þar
að iðjumúg iðnaðarlandanna og tilkynnir honum, að hann eigi
ekkert föðurland. Verkamennirnir séu raunverulega þrælar hjá
auðmannastétt heimsins. Þeir eigi engar framtíðarvonir. Börn
þeirra erfi þrældóminn eftir foreldrana. Verkamenn erfi aðeins
hlekki kúgunarinnar. Því fleiri og betri sem verkvélarnar verði,
því meiri verði gróði auðmannanna. Hann muni svo að segja
>neð ári hverju safnast á fæi-ri og færri hendur, en öreigunum
fjölga. Að lokum muni öreigar allra landa sameinast. Hinn
mikli fjöldi muni með byltingu taka völdin af hinni fámennu
auðstétt og um leið allar eigur hennar. Þá muni hefjast nýtt
tímabil í sögu þjóðanna. Þjóðfélagið eigi öll náttúrugæði og
öll meiri háttar fx-amleiðslutæki. Þegar hið nýja skipulag verði
komið á, fái allir aðstöðu til að vinna og njóta réttlátlega árang-
Urs af vinnu sinni. Síðar gerði Karl Marx rækilega grein fyrir
þessari stefnu í miklu hagfræðiriti, er hann nefnir „Auð-
uiagnið". Er sú bók oft kölluð „biblía verkamannastéttarinnar“.
Karl Marx gerði ráð fyrir, að verkamannastéttin gæti aldrei
fengið eðlileg lífsskilyrði, nema hún hefði brotið á bak aftur
valdaaðstöðu allra annarra stétta í þjóðfélaginu. Hann gerði
ráð fyrir, að að lokinni byltingu þessari tæki vei-kalýðuiánn
sér einræðisvald og stýrði siðan löndum og ríkjurn. En til að
homa þessu nýja skipulagi á varð vei-kalýðurinn að verða
riéttvís. Hann varð að hætta að telja sig heima í nokkru landi.
Hann varð að hata aðrar stéttir og búast til að sigra þær með
borgarastyx-jöld. Hinn byltingarsinnaði verkalýður mætti að-
eins hafa eitt takmark: að rífa til grunna núverandi þjóð-
skipulag, gera enga málamiðlun eða tilslakanir við aðrar