Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1941, Síða 76

Andvari - 01.01.1941, Síða 76
72 Björn Guðfinnsson ANDVAIU kvonfangs og sátum þaðan af í búum vorum og gengum til allra starfa. Eða hvar eru allir túngarðarnir og merkisgarð- arnir og þvergarðarnir, sem vér eftirlétum yður? Hvað er orðið af ökrunum, sem vér plægðum og sáðum og uppskárum? Þér getið að vísu sýnt oss merki alls þessa enn í dag, en þessi merki eru nýr vitnisburður um dáð vora og dugnað og kunnáttu, að tíminn, sem öllu eyðir, ásamt með dáðleysi yðru skuli eigi vera búinn að eyðileggja handaverk vor með öllu. En þér, afkomendur vorir, þér eigið nú varla skip í eigu yðar, það er haffært sé, og þó brestur yður enn meir þor til að voga yður út á hafið, þó segulstálið og mælingarfræðin, sem vér þekktum eigi, leggist nú á eitt með himintunglunum og æpi til yðar og frýi yður hugar og bjóði yður leiðsögn sína**.1) . • ■ „Þér lifið á gullöld þessari, er alls konar vísindi hafa hafið svo langt yfir fornöldina, að eigi mundu þeir nú lcenna Norðurálfuna, er þá lifðu, og þó hefur öllu farið hnignandi bjá yður og yður sjálfum, síðan vér skildum við, en í útlönd- um hafa niðjar samtíðamanna vorra umbætt það allt, er þeir eftirlétu þeim. Hverju gegnir slíkt ræktarleysi? Hvaðan lcemur oss ómennska sú í ættir vorar? Eða vorum vér máske óættræknari en þeir? Lögðum vér eigi allt kapp á að varð- veita heiður og virðing ættar vorrar, bæði með rausn og af- reksverkum og utanferðum og kurteisi og forsjállegri bu- stjórn? Var nokkur á svo hraðri rás undan ofurefli, að hanu eigi snerist í móti, er hann var minntur á það, að eigi mundi i'aðir hans eða langfeðgar runnið hafa?“2) ... „Hefðum vér vitað, að vér mundum geta slíka niðja, þá hefði oss verið nær og sannara að falla í orustu fyrir Harakli konungi hin- um hárfagra eða sæta yfirgangi hans og krjúpa að knjám honum, er oss þótti þó kostur miklu verri, en flytjast hingað og yrkja land þetta upp — handa dáðlausum afkomendum“-3^ ... „Hafið þér þá engan skilning til að skilja og engin aug11 til að sjá það, sem betur má fara og efla hag yðar? Eruð þer 1) Ármann II., 10.—11. bls. 2) Ármann II., 14.—15. bls. 3) Ármann II., 16. bls.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.