Andvari - 01.01.1947, Qupperneq 48
44
Þorsteinn Þorsteinsson
ANDVARI
þar sem allir bjuggu þá í sveitum, en meiri hluti fólks nú í
kaupstöðum og kauptúnum. En í sveitum eru heimilin að
jafnaði stærri en í bæjunum. Að því er til heimilanna kemur,
virðist því nær að bera allt landið 1703 saman við sveitirnar
nú heldur en við allt landið, enda var mannfjöldinn i sveit-
unum 1940 svipaður eins og mannfjöldinn 1703, aðeins rúml.
3 þúsundum lægri.
Það telst svo til, að 1703 hafi verið alls á landinu 8191 heim-
ili, og koma þá 6.1 manns á hvert þeirra að meðaltali, en af
þessum heimilum voru 567 eins manns heimili, og 2 (í Slcál-
holti og á Hólum) voru miklu stærri en öll önnur, milli 70
og 80 manns í hvoru. Þau svara því miklu fremur til þess,
sem nú er kallað félagsheimili (í heimavistarskólum, sjúkra-
húsum o. f 1.), heldur en venjulegra heimila, enda er vafasamt,
hvort þar hefur ekki verið um fleiri heimili að ræða, enda
þótt allt fólk sé talið þar í einu lagi. Ef eins manns heimilin
og þessi tvö stóru heimili eru dregin frá heimilatölunni, verða
eftir 7622 fjölskylduheimili, og eru þá að meðaltali 6.5 manns
í hverju þeirra. Til samanburðar má geta þess, að við mann-
talið 1940 voru að meðaltali 5.5 manns í hverju fjölskyldu-
heimili í sveitunum og aðeins 4.7 á öllu landinu. Ef tekin eru
hins vegar öll heimili, bæði eins manns heimili og félagsheim-
ili, verður meðalstærðin 1940 5.4 manns í sveitunum, en 4.2
á öllu landinu.
Ljósa mynd af byggingu heimilanna 1703 og samanburð
við nútíðina (sveitirnar 1940) má fá með því að deila heim-
ilafjöldanum í hverja tegund heimilismanna og sjá þannig,
hve mikið kemur af hverri í meðalheimili. Er hér átt við fjöl-
skylduheimili, en eins manns og félagsheimilum sleppt. Á
hvert fjölskylduheimili kemur þá að meðaltali:
1703 1940
Sveitir
Húsráðendur .............................. 1.00 1.00
Giftar konar (húsfreyjur) ................ 0.74 0.74
Ógiftar húsfreyjur .......................... — 0.08
Börn innan 15 ára ........................ 1.40 1.74
Börn 15 ára og eldri ..................... 0.77 0.88