Andvari - 01.01.1919, Blaðsíða 164
144
Vitakeríi íslands
[Andvari.
félaginu megnar kvartanir, einkum hve ljósið á hon-
um sé dauft og óskýrt.
Ef svo er, þá má ekki undan falla að bæta úr
því, og um ieið breyta honum í hornvita þannig, að
hættulaust sé eftir honum að sigla fyrir Kópaílögur.
3. e) Látrabjargsviti: Varla munu skiftar skoðanir
um það, að Látrabjarg sé eitt af aðal-andnesjum
þessa lands, né hitt, að þar fyrir er sigling einna
mest, jafnt flskiskipum, sem öðrum skipum. Undan
Látrabjargi er liin alræmda Látraröst, sem oft og
tíðum er ærið úfin og ill yfirferðar. Um þessar slóðir
er því margs að gæta og þess vegna ofureðlilegt, að
farmönnum komi það betur, að hér sé einhver al-
mennilegur viti, sem óhætt er að reiða sig á, en ekki
einhver vitanefna, sem ekkert er á að byggja, en
svo er um þann vita, sem nú er á Bjargtöngum. —
Sjálflýsandi smáviti getur ekki átt sér stað á þessum
stöðvum, það hljóta allir að sjá, heldur hlýtur þar
að koma stór viti, sem lýsi minst 22 sjómílur. —
Minna nægir ekki um þann vita, sem bæði er aðal-
viti Vesturlands og um leið landtökuviti allra sigl-
inga vestur og norður um land.
3. f) Viti á Keflavíkurhól: í frumvarpinu er að eins
gert ráð fyrir smávita á þessum stað. Það teljum
vér, og eins var um alla félaga »()ldunnar«, gersam-
lega ófullnægjandi, ef hann á að koma að nokkru
liði öllum þeim mikla fiskiflota, sem svo þrásinnis
verður undan illviðrum einmitt að leita undir þenn-
an vita, til þess að ná annaðhvort Súgandafirði eða
Önundarfirði. Viti er því mjög nauðsynlegur á þess-
um stað, enda er oss kunnugt um, að búið mun
vera að veita fé til þess að byggja þar vita; um
stærð vitans er þó ekkert ákveðið, annað en það,