Fréttablaðið - 12.09.2009, Side 77
LAUGARDAGUR 12. september 2009 45
Um miðjan september verður opnuð sýning
með nýjustu verkum Eggerts Péturssonar í
menningarmiðstöðinni Nordatlantens Brygge
í Kaupmannahöfn. Sýningin tengist opnun
Listamesssunnar í Höfn sem hefst um næstu
helgi. Í tengslum við hana gefur bókaútgáfan
Crymogea af þessu tilefni út bókina Blóma-
landið þar sem sýnd eru öll verk sýningarinn-
ar og ítarlega fjallað um feril og list Eggerts.
Andri Snær Magnason rithöfundur ritar burð-
arritgerð bókarinnar, Blómalandið, og fjallar
þar um verk Eggerts í víðu samhengi lista-
sögu, raunvísinda og umhverfisskynjunar.
Sýningarstjóri er Ólöf K. Sigurðardóttir, list-
fræðingur og forstöðumaður Hafnarborgar,
og ritar hún inngang að bókinni sem er hönn-
uð af Hildigunni Gunnarsdóttur og Snæfríði
Þorsteins og er mjög óvenjuleg að allri gerð.
Bókin er „lífræn“ í umfangi og stærð,
nánast engar blaðsíður hennar
eru jafn stórar, í henni eru fjórar
stórar „útfellur“ (fold-outs) og
handbundin saman með þræði.
Það er prentsmiðjan Prentmet
sem prentaði bókina og batt hana
inn. Þær Hildigunnur og Snæfríð
hafa áður hannað bók um verk
Eggerts sem kom út í tilefni af
yfirlitssýningu hans á Kjarvals-
stöðum árið 2007 og bókina
Flora Islandica, safn teikninga
Eggerts af íslenskum háplönt-
um, sem Crymogea gaf út 2008.
Fyrir hönnun þeirrar bókar hlutu
þær verðlaun í flokki grafískr-
ar hönnunar fyrir prentmiðla í árlegri sam-
keppni FÍT og silfurverðlaun í flokki bóka og
bæklinga í samkeppni evrópskra hönnuða,
Art Directors Club of Europe, í
Barcelona í júní 2009.
Sýningin á verkum Eggerts í
Nordatlantens Brygge stendur frá 17.
september 2009 til 3. janúar 2010. Öll
verkin eru olíumálverk og unnin á
síðustu tveimur árum. Fyrir verk sín
hefur Eggert öðlast ýmsar viðurkenn-
ingar, til dæmis silfurverðlaun Carn-
egie Art Award árið 2006 og unnið
sér sess sem einn kunnasti og dáðasti
samtímalistamaður Íslendinga.
Bókin er á þremur tungumálum:
íslensku, dönsku og ensku. Kim Lemb-
eck þýddi textana á dönsku og Anna
Yates á ensku. Bókin er til sölu í bóka-
búðum á Íslandi og í Danmörku og fæst einnig
hjá útgefanda, Crymogeu, í verslun forlagsins
að Barónsstíg 27. - pbb
Eggert á Íslandsbryggju
MYNDLIST Eggert
Pétursson sýnir í Höfn
um komandi helgi.
Fyrirtækið Geneva Free Ports
& Warehouses Ltd, hefur um
langt árabil starfað sem tollvöru-
geymsla þar í borg sem sérhæfði
sig í geymslu listaverka. Húsnæði
þess var undanskilið tollafgreiðslu
og þangað mátti flytja og geyma
listaverk sem voru á ferð í önnur
heimshorn. Í maí lokaði ríkis-
stjórnin í Sviss þessari aðstöðu
þannig að nú er ekki lengur skjól
í miðri Evrópu til að geyma verð-
mæti án tollafgreiðslu. Markaður-
inn lætur ekki að sér hæða og eru
þegar komin svipuð fyrirtæki á
kreik í Asíu samkvæmt fréttum á
Artprice.
Það voru einkum uppboðshús,
gallerí og safnarar sem notfærðu
sér aðstöðuna í Sviss. Þar hafa
yfirvöld nú hert reglur svo skrá
verður góssið, verðmæti, hvaðan
það kom og hvert það fari. Er það
gert til að torvelda flutning milli
landa á þýfi, bæði frá stríðshrjáð-
um löndum og líka úr grafar-
ránum og stuldi á forngripum.
Alþjóðleg skrá um týnda listmuni
fylgist náið með gripum sem
hverfa með skrám sínum. Þegar
eru áætlanir um að opna svona
tollfrí svæði víðar en í Asíu:
þannig ætla Frakkar að opna slíkt
svæði á eyjunni The Art Loss Reg-
ister, á database Seguin í París og
þar má geyma listaverk svo fram-
arlega þau eigi ekki að fara út úr
löndum Evrópusambandsins. Er
litið á þetta í listaheiminum sem
örvæntingarfulla tilraun til að
styrkja löngu horfna stöðu Frakk-
lands sem forysturíkis í listum og
listaverkasöfnun. Þannig tapaði
Frakkland þriðja sæti sínu sem
mesta listaverkaþjóð heims til
Kína 2007. Asíumarkaður í lista-
verkasölu er stöðugt að stækka.
Nú ætla yfirvöld í Singapúr að
stofna frísvæði til geymslu á list-
munum í lok þessa árs. Svæði
sem þessi eru yfirleitt notuð til
geymslu á listmunum með vafa-
saman uppruna og óljósan feril og
líklega ólöglega eigendur. - pbb
Falið þýfi
MYNDLIST Ópi Munchs var stolið en það
komst aldrei á þýfimarkaði.
Fjórða hljómplata Hjálma, IV,
er nú fáanleg á síðunni Gogoy-
oko.com. Platan kemur í verslan-
ir þann 21. september en þangað
til verður eingöngu hægt að
kaupa hana á stafrænu formi á
síðunni. Einnig verða allar eldri
plötur Hjálma (Hljóðlega af stað,
Hjálmar og Ferðasót) seldar á
4,50 evrur hver, eða um 800 krón-
ur. IV var tekin upp í Hljóðrita
í Hafnarfirði og í Tuff Gong og
Harry J Studio á Jamaíku í vor.
Á Jamaíku fékk hljómsveitin til
liðs við sig ýmsa þaulreynda inn-
fædda tónlistarmenn sem setja
sitt mark á lopapeysureggíið sem
Hjálmar eru þekktir fyrir.
Hjálmar
á Gogoyoko
HJÁLMAR Fjórða plata Hjálma er nú
fáanleg á síðunni Gogoyoko.com.
Nýtt
í Skífunni!
Laugavegi · Kringlunni
www.skifan.is
Tónlist Tölvuleikir
DVD
Allar hljóðversplötur
bítlanna í bættum
hljómgæðum og
í glæsilegum umbúðum