Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1989, Qupperneq 58
breytingu voru gerðar
breytingar á lögum
um Útflutningsráð
íslands og lögum um
útflutningsleyfi o.ffl.
I Frumvörp um þessi mál
voru rædd í stjórn
Landssambandsins en
gáfu ekki tilefni til
athugasemda.
Málefni Útflutningsráðs
íslands hafa verið nokkuð
til umræðu innan
stjórnarinnar, einkum að
j því er varðar stefnumörkun
umfjármögnun
stofnunarinnar Tveir
af megin tekjustofnum
stofnunarinnar eru
skattlagning á
atvinnuvegina, en 2/7
hlutar
8 Iðnlánasjóðsgjaldsins
renna beint til
stofnunarinnar, svo og
sérstakt framlag af
endurgreiðslu söluskatts
sjávarútvegsins. Nefnd á
vegum Útflutningsráðs
starfar nú að tillögugerð
um framtíðarfjármögnun
stofnunarinnar. Hefur
j verið beðið með
endurskoðun
Iðnlánasjóðsgjaldsins þar
til hægt verður að taka
afstöðu til tillagna
nefndarinnar.
Landssamband
iðnaðarmanna á ágætt
samstarf við
Útflutningsráð og er
framkvæmdastjóri
Landssambandsins
varamaður í stjórn þess.
Upplýsingar um mál sem
tekin eru fyrir á
stjórnarfundum berast því
Landssambandinu
reglulega, þannig að oft
gefast tilefni til umræðna
um þau innan stjórnar
Landssambandsins.
Landssamband
iðnaðarmanna styður á
ýmsan hátt við útflutnings-
og markaðsstarf
iðnfyrirtækja. Að stórum
hluta er þar um að ræða
ýmsa tilfallandi
aðstoð og þjónustu af
ýmsum toga, t.d. í
sambandi við
I sýningaþátttöku fyrirtækja,
útgáfustarfsemi og
kynningar. Jafnframt hefur
verið unnið að ýmsum
stærri og meira
stefnumarkandi
verkefnum. Má þar nefna
hið gríðarmikla starf sem
Landssambandið ásamt
öðrum vann við
endurskoðun staðals
um útboð, tilboð og
verksamninga (ÍST
30)
Hinn nýi staðall, sem tók
gildi 15. september 1988,
er mun ítarlegri en eldri
útgáfur hans. Eitt af
veigamestu nýjungunum í
staðlinum eru ákvæði um
samskiptareglur
aðalverktaka og
undirverktaka. Er þar um
gamalt baráttumál
Landssambands
iðnaðarmanna að ræða.
Þótt hér hafi náðst nokkur
árangur taldi
Landssambandið engu að
síður, að enn vantaði
nokkuð á, að nægilega
ítarlegar leiðbeinandi
reglur væru til um
samskipti þessara aðila.
Landssambandið gaf því
út eyðublað fyrir sérstakan
undirverktaka-
samning, sem er í raun
til fyllingar ákvæðum
ÍST-30 og það hvetur
félaga sína til að nota. Eru í
eyðublaðinu tekin fyrir þau
atriði, sem einkum reynir á
í samskiptum
undirverktaka og
aðalverktaka.
Þá hefur
Landssambandið itrekað
aðstoðað fyrirtæki, sem
talið hafa að óeðlilega hafi
verið staðið að útboðum,
en í kjölfar slíks
málareksturs var haustið
1986 skipuð nefnd af
Verslunarráði íslands til að
gera staðal um útboð á
vörum. Landssambandið
á fulltrúa í þessari nefnd.
Seinagangur var nokkur í
starfi þessarar nefndar, en
þó kom hún frá sér fyrstu
drögum að staðli. Samt
sem áður eru mál þessi í
nokkurri biðstöðu, þar
sem opinberum aðilum
þótti rétt að bíða eftir
þýðingu á staðli um
opinber innkaup, sem
samin hafði verið af
alþjóðatollabandalaginu
GATT. Er þýðing þessi
ekki tilbúin.
Þá má minna á að
Landssambandið stendur
ásamt Félagi íslenskra
iðnrekenda að vöru- og
þjónustuskrá
iðnaðarins, en henni er
ætlað að upplýsa
innkaupaaðila um vörur og
þjónustu, sem eru á
boðstólnum hjá
innlendum fyrirtækjum.
Ennfremur má geta þess
að Landssambandið
studdi á sínum tíma
f[árhagslega við stofnun
Utf lutnings- og
markaðsskóla
íslands.
EVRÓPU-
MÁLEFNI
Málefni
Evrópubandalagsins og
stefnumörkun þess um
einn sameiginlegan
evrópskan markað árið
1992, hafa talsvert verið til
umræðu innan
stjórnarínnar. Þátttaka
Landssambandsins í
ráðgjafanefnd EFTA
gerir því kleift að fylgjast all
vel með þessum málum,
en hlutverk EFTA hefur
verulega breyst eftir að
þessi nýju viðhorf komu
upp í Evrópu. Að
undanförnu hefurverið
unnið gífurlega mikið starf
við athugun á því, að hve
miklu leyti hægt væri að
semja við
Evrópubandalagið um, að
ýmsir þættir hins
sameiginlega innri
markaðar næðu einnig til
EFTA landanna. Hefur
EFTA gegnt
forystuhlutverki f.h.
aðildarlanda sinna í
þessum viðræðum. Auk
þátttöku í ráðgjafanefnd
EFTA hefur
Landssambandið leitast
við að fylgjast með þessari
umræðu með þátttöku í
þeim nefndum, sem hér á
landi hafa verið settar á
laggirnar, annars vegar til
þess að dreifa