Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1989, Page 62
62
forgangsverkefni í
íslenskum
skólamálum á
grunnskóla- og
framhaldsskóla-
stigi, á vegum
menntamálaráöu-
neytisins. Raðað var í
forgangsröð þeim tíu
aðaláherslatriðum,
sem Landssambandið
taldi að þyrfti að vinna
að á næstu 10 árum.
- Umsögn um
reglugerð um
löggiltar
iðngreinar,
námssamninga og
sveinspróf og
reglugerð um
framhaldsskóla. í
framhaldi af setningu
laga um framhaldsskóla
hefur á vegum
menntamálaráðu-
neytisins verið lögð
mikil vinna í að semja
tvær reglurgerðir, sem
fjalla um iðnfræðsluþátt
laganna. Auk þess sem
Landssambandið hefur
tekið beinan þátt í
undirbúningi og vinnu
við samningu
reglugerðanna, hefur
það sentfrá sér
ítarlegar umsagnir um
þær báðar. Er þar þess
getið, sem jákvætt er
talið og þess, sem
betur má fara.
Gagnrýnd eru m.a.
atriði eins og að ekki sé
tekið á sérhæfingu
verkmenntaskóla,
mikið sé um kjaratengd
atriði, sem eigi heima í
kjarasamningum en
ekki í reglugerðum og
að stjórnkerfi skólanna
sé njörfað niður í of
þunglamalegt horf
ásamt því að
námsgagnagerð þurfi
að efla stórlega og að
virkt kennslueftirlit
skorti.
KYNNING Á
IÐNFRÆÐSLU 0G
VERKMENNTUN
Eins og fram kom í
skýrslu stjórnar
Landssambandsins til
síðasta Iðnþings hafði
stjórnin látið vinna drög
að átaki í kynningu á
námi og störfum í
iðnaði. Voru hugmyndir
þessar kynntar fyrir
menntamálaráðuneyti og
iðnaðarráðuneyti með það
í huga, að ráðuneytin
veittu fjárhagslegan
stuðning, til þess að
standa mætti nokkuð
myndarlega að því að gefa
almenningi og ungu fólki
jákvæðari mynd en áður af
iðnnámi og þeim störfum,
sem það leiðir af sér. Þótt
afstaða beggja
ráðherranna væri jákvæð
til málsins komst það ekki
svo langt að til þess væri
veitt fé á fjárlögum.
Starfshópur
Iðnfræðsluráðs um þróun
verkmenntunar sem
Landssambandið átti
fulltrúa í, skipaði síðar
vinnuhóp, sem
sérstaklega skyldi athuga
annan þátt þessa máls þ.e.
kynningu á iðnfræðslu. í
þeim vinnuhóp var
starfsmaður
Landssambandsins.
Skilaði hópurinn ítarlegum
tillögum um að hannaður
og framleiddur yrði
„upplýsingapakki", sem
innihéldi allt það, sem þarf
til að kynningarinnar.
Landssambandið hefur
síðan ásamt
Iðnskólaútgáfunni kostað
forvinnu þessa verkefnis
til að tryggja að það verði
tilbúið fyrir næsta vor, en
opinber fjárveiting í
verkefnið verður ekki Ijós
fyrren undirn.k. áramótog
myndi því tefja það um ár,
ef beðið væri eftir henni.
MÁLEFNI
IDNTÆKNI-
STOFNUNAR
IVIálefni
Iðntæknistofnunar íslands
eru reglulegatil umræðu í
stjórn Landssambandsins,
bæði þegar sérstök tilefni
gefast og svo hefur sú
venja skapast, að fulltrúi
Landssambandsins í
stjórn stofnunarinnar er
kallaðurtil skrafs og
ráðagerða með vissu
millibili. Skipurit og
starfsskipulag
stofnunarinnar, m.a.
stofnsetning
sérstaðlaráða, s.s.
rafstaðlaráðs og
byggingastaðiaráðs,
ásamtárlegri umræðu um
tillögur til fjármögnunar
stofnunarinnar hafa verið
ofarlega á baugi frá síðasta
Iðnþingi. Einnig hafa
hugmyndir um að gera
stofnunina að
sjálfseignastofnun verið
nokkuð ræddar, en engin
formlega áætlun hefur
verið gerð um það mál
ennþá.
Nefnd um starfsemi
véltæknideildar við
Iðntæknistofnun skilaði
haustið 1988 ítarlegum
tillögum um hvernig skyldi
af stað farið með deildina.
Landssambandið, sem átti
aðiid að nefndinni, lagði til
verulegt vinnuframlag í
tengslum við starf hennar.
Ákveðið var að hefja starf
deildarinnar með
lágmarksbúnaði og
stendur nú yfir uppsetning
tölvu- og vélabúnaðar. Er
reiknað með að í lok þessa
árs verði tilbúin kennslu-
og þjálfunaraðstaða í
samræmi við markmið
deildarinnar. Deildin
verður hluti af
Rekstrartæknideild
Iðntæknistofnunar og
kemur hún til með að heita
Framleiðslutækni-
deild.
Iðntæknistofnun íslands
óskaði umsagnar
Landssambandsins um
drög að lýsingu á
námskeiði fyrir
húsverði, sem undirbúin
hefðu verið af
Fræðslumiðstöð
iðnaðarins. Fulltrúar
Landssambandsins fóru
yfir þessi drög, og voru
ákvæði iðnaðarlaga höfð
að leiðarljósi, og reynt að
sjá til þess að með námi
þessu yrði ekki á
óeðlilegan hátt vegið að
starfsréttindum
iðnaðarmanna. Var tekið
tillit til ýmissa ábendinga
Landssambandsins.