Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1989, Side 76
unnið að breytingum á
vinnslu
Hagsveifluvogarinnar.
Skrifað hefur verið nýtt og
betra forrit til að vinna úr
upplýsingum og hresst
hefur verið upp á útlit og
framsetningu þessarar
útgáfu. Einnig sendir
Landssambandið
reglulega niðurstöður
byggingarkönnunar
um atvinnuástand í
byggingariðnaði.
önnur
upplýsingamiðlun
Landssambandinu berst
árlega urmull upplýsinga,
markaðslegs og tæknilegs
eðlis, og miðlar þeim í
hverju tilviki til þeirra
fyrirtækja og einstaklinga,
sem haft gætu hag af
þeim. Auktilfallandi
upplýsinga af þessu tagi
tekur Landssambandið
þátt í skipulagðri
upplýsingamiðlun með
þátttöku í rekstri Vöru-og
þjónustuskrár
iðnaðarins, sem geymir
upplýsingar um
framleiðendur þúsunda
vöru- og þjónustutegunda.
Standa Landssambandið
og Félag ísl. iðnrekenda
saman að rekstri þessarar
skrár, sem er tölvuvædd
og gefur fyrirtækjum
möguleika á að láta
skrásetja sig og
framleiðsluvörur sínar eða
þjónustu, þannig að þegar
fyrirspurnir berast, verði
upplýsingum um þau
komið á framfæri.
Kynnisferðir á
erlendar vöru og
tæknisýningar hafa
verið fastur liður í
starfsemi
Landssambandsins
undanfarin ár. Hefur
Landssambandið ýmist
eitt sér eða í samvinnu við
aðildarfélög sín og aðra
aðila staðið fyrir slíkum
ferðum. Einkum hafa ferðir
þessar verið á sýningar,
sem tengjast
byggingariðnaði, tréiðnaði
og málm- og skipaiðnaði.
Þannig kannaði
Landssambandið áhuga
fyrirtækja á hópferðum á
nokkrar sýningar og má
þar nefna
sjávarútvegsráðstefnu og
-sýningu í St. John í
Kanada í nóvember 1988,
véla og tækjasýninguna
EMO í Hannover í
Þýskalandi nú í september
sl. og sýninguna
Schweisen og Schneiden
í Essen í Þýskalandi á
samatíma. Ekki reyndist
næg þátttaka til hópferðar
en varð þó kveikja að því
að nokkur fyrirtæki fóru á
eigin vegum. í
janúarmánuði 1988 gekkst
Landssambandið fyrir
hópferð á alþjóðlega
sýningu á byggingarefnum
og byggingatækni í
Miinchen í Þýskalandi.
Um 30 manns fóru í
ferðina. Auk sýningarinnar
fór hópurinn í
fyrirtækjaheimsóknir og
skoðaði framkvæmdir við
nýjan alþjóðlegan flugvöll,
sem var í byggingu í
nágrenni borgarinnar. Þá
gekkst Landssambandið
fyrir hópferð á sýningarnar
INTERZUM ÍKölnog
LIGNA í Hannover í
Þýskalandi í maí sl., sem
eru efnisvöru- og
vélasýningar fyrir
húsgagna- og
innréttingaiðnað.
Landssambandið hefur
einnig átt aðild að
undirbúningi og tekið þátt í
sérstökum
kynnisferðum sem
hafa að markmiði að
upplýsa einstök fyrirtæki
eða fyrirtækjahópa um
markaðsmöguleika.
Þannig sendi
Landssambandið
starfsmann sinn í ferð til
Grænlands, sem
Útflutningsráð íslands
gekkst fyrir í
nóvembermánuði 1987.
Markmið ferðarinnar var
að kynnast aðstæðum á
Grænlandi m.t.t.
möguleika á auknum
viðskiptum milli íslands og
Grænlands. Heimsóttvoru
fyrirtæki, stofnanir og
atvinnurekendasamtök.
Talsvert var rætt um
hvernig einfalda mætti
flutninga milli íslands og
Grænlands og ákveðið að
skipa íslensk/grænlenska
nefnd til að huga að
úrbætum á því sviði. í
þessari ferð afhenti fulltrúi
Landssambandsins
yfirvöldum menntamálaá
Grænlandi tillögu um að
aðstoða grænlensk
ungmenni til iðnáms á
íslandi. Var þessari tillögu
vel tekið og ákveðið að
næsta skref í málinu yrði
að Grænlendingar útfærðu
nánar hvernig unnt væri að
hrinda þessu í framkvæmd
og hefðu að því búnu
samband við
Landssamband
iðnaðarmanna.
Þá tók framkvæmdastjóri
Landssambandsins þátt í