Vikan - 28.04.1966, Qupperneq 14
■■
MMH
SYBIL CHRISTOPHER,
36 ÁRA
(Áður gift Richard Burton.)
Um tíma virtist hún vera sú
kona sem mestu hafði tapað
á síðasta áratug. En nú er
hún yfir sig hamingjusöm með
eiginmann sinn, Jordan Christ-
opher, sem er tuttugu og
fjögra ára gamall. Þau eru
líka mjög ánægð með diskó-
tekið sitt sem þau kalla
Arthur. Hún er hlýleg og glöð
og segist einfaldlega vera
„venjuleg Meþódistastúlka
frá Wales.“
SHIRLEY MCLANE
32 ARA
Hún fer yfirleitt sínu fram,
er ekki háð neinum sértrúar-
flokki og í augnablikinu hefur
hún kastað frá sér stórauð-
æfum, með því að hætta að
leika og ferðast um heiminn
til að seðja óstöðvandi for-
vitni sína. Á þessum ferðum
hefur hún upplifað margt
nýstárlegt, m.a. verið tekin
föst fyrir að taka þátt í upp-
reisn í Austurlöndum. Við-
víkjandi hjónabandi sínu og
Steve Parker, (sem býr í Jap-
an, en hún í Kaliforníu) segir
hún: „Ég er hætt að ætlast
til að fólk skilji það.“
HUEGA
ER HÆGT AÐ KALLA Þ
V_________
JAQUELINE KENNEDY
36 ÁRA
Nú, tveim árum eftir að
hjarta hennar brast, hefur
þessi mest umtalaða kona
Bandaríkjanna sýnilega náð
sér. Það hefur örugglega ekki
alltaf verið létt að vera í
hennar sporum. í blöðunum
hefur oft verið ósmekklegt
slúður og uppástungur um
hjónaband henni til handa.
Það hefur verið fylgzt með
hverju skrefi hennar og það
myndu eflaust margir vilja
gefa mikið fyrir að vera boðn-
ir í eitt af miðdegisverðar-
boðum hennar. En hvort sem
hún býr í Newport eða á
Fimmtu tröð, gleymir hún
aldrei hver hún var og hver
hún er nú.
ELIZABETH TAYLOR,
34 ÁRA
Þegar hún var sextán ára,
lýsti hún sjálfri sér sem barni
í konulíkama. Þegar hún var
tuttugu og níu, eftir að hún
hafði nauðuglega sloppið frá
dauðaslysi, sagðist hún rétt
vera að ná fullorðinsaldri. í
dag er hún fullvaxin kona,
hún er orðin félagslynd, hefur
ríka kímnigáfu og ber mikla
umhyggju fyrir sínum nán-
ustu. Hún segir: — Mín
mesta prýði eru gráu hárin.
Ég er sannarlega ekki hrædd
við að verða gömul.... ham-
ingjan er svo margslungin,
ekki eingöngu öryggi í dýrð-
legu himnaríki....
JULIE ANDREWS,
30 ÁRA
Hún er viðurkennd bezta
„Fair Lady“. Nú er mikið tal-
að um að hjónaband hennar
sé á fallandi fæti. Hún er
gift leiktjaldamálaranum
Tony Walton. En stöðugt
eykur hún á frægð sína og
hefur nú verið kjörin bezta
kvikmyndaleikkona ársins.
Þegar hún er spurð um aldur-
inn, segir hún: „Ég er sein-
þroska, hræðilega seinþroska,“
VIKAN 17. tbl.