Vikan - 28.04.1966, Qupperneq 28
Fyrst blrtist að sjálfsögðu heiti þáttar-
ins. Daninn. sem teiknaði þetta skilti,
gerði greinilega ekki grcinarmun á þ
og p!
Þessar dömur heita Nína Björk Elías-
son og Guðrún Sigríður Friðbjörn-
dóttir, cn þátturinn hófst á viðtali við
þær.
Um alla heima
do ocima
Aðrir dagskrárliðir íslenzka sjón-
varpsins þennan dag voru samtalsþátt-
urinn „Um alla heima og geima" og
sellóleikur Gunnars Kvarans. í sam-
talsþættinum, sem var með talsvert
nýstárlegu sniði, spjallaði Andrés Ind-
riðason við sex námsmenn í Kaup-
mannahöfn. og komu þar við sögu
Nína Björk Elíasson, sem nemur tón-
listarfræði við Hafnarháskóla, Guðrún
Sigríður Friðbjörnsdóttir, sem stundar
nám í sálfræði, Sigurður Riehter, sem
nemur náttúrufræði, Ásgeir Sigurðs-
son, sem nemur veðurfræði, Eysteinn
Pétursson, sem nemur eðlisfræði og
Ólafur Gíslason, sem nemur málaralist
við Kunstakademíuna.
Meðan á samtali Andrésar og Ólafs
stóð, dró Olafur upp mynd og ræddu
þeir um listaverkið meðan það var í
sköpun. Sýndi myndin hund, sem hafði
bitið póst, en fyrir það fékk hinn fyrr-
nefndi makleg málagjöld.
Allir, sem tóku þátt í þessum sam-
talsþætti, komu með mynd eða mál-
verk með sér, sem þeir höfðu sjálfir
gert. Öll listaverkin voru fest upp í
salnum og áður en þættinum lauk,
hlaut Ólafur það verkefni að geta sér
til, hver hefði málað hverja mynd.
í:í-:íií:íS
og sér er svipmynd af sjónvarpsskerminum á sama andartaki,
Næst ræddi Andrés við Sigurð Richtcr, og leit þá uppstillingin svona út.
Ólafur Gíslason og Andrés Indriðason ræðast við.