Vikan - 28.04.1966, Síða 29
íslenzkir
stúdentar
á Hafnar-
slóO
Af öðrum þáttum, sem voru á dag-
skrá íslenzka sjónvarpsins í Gladsaxe
aðra daga, má nefna samtal Elíasar
Elíassonar, formanns Stúdentafélags-
ins í Höfn við Stefán Karlsson, for-
mann íslendingafélagsins. Ræddu þeir
um íslenzka stúdenta á Hafnarslóð
fyrr og nú.
Þá kom fram söngkvintett, sem ein-
hverjum spégaur datt í hug að kalla
„The Swinging Surtsey Singers"! Hús-
mæðraþáttur var eitt sinn á dagskrá
og var þá komið upp eldhúsi í heilu
líki í upptökusalnum. Bakaðar voru
forláta góðar rauðvínskökur og ung-
verskt sígaunagúllas matreitt, sem all-
ir fengu auðvitað að gæða sér á að
upptöku lokinnil
Sitthvað fleira var líka fyrir kven-
þjóðina: tízkusýning og leiðbeiningar
um blómaskreytingar. Þá var þáttur
helgaður áhugamönnum um laxveiði,
barnatími. spurningaþáttur, gítarleik-
ur, danslagaþáttur, leikþáttur, þar sem
hinn þekkti leikari Per Wiking kom
við sögu, myndlistarþáttur og þáttur,
er nefndist Tingluti, en þar kom fram
hópur danskra þjóðlagasöngvara og
dansara.
Myndavél nr. 2 var staðsett fyrir fram-
an skiltastatív og sýndi myndir til-
heyrandi sögu Stúdentafélagsins ...
... en slíkum myndum var öðru hverju
brugðið upp meðan á samtalinu stóð.
■O Þcssi mynd er tekin
skömmu áður en upp-
taka hófst á samtals-
þætti Stefáns Karlsson-
ar og Elíasar Eiíassonar
um íslcnzka stúdenta í
Kaupmannahöfn.
Tvær myndavélar, númer 1 og 3,
voru notaðar til að taka myndir af
Stcfáni og Eliasi, og valdi stjórn-
andinn myndir frá þeim til skipt-
is til útscndingar. Myndavél nr. 1
tók allan timann myndir af Stcf-
áni...
... og myndavél nr. 3 tók þessa
mynd af Elíasi.
... og þannig birtist hann á skerminum.
VIKAN 17. tbl.
29