Vikan


Vikan - 17.10.1968, Blaðsíða 30

Vikan - 17.10.1968, Blaðsíða 30
ONSON KVEIKJARAR Vanti ykkur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara urval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borökveikjurum. EinkaumboS: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89. Reykjavik. STJÖRNUSPÁ |f m Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Reyndu eftir mætti að forðast missætti við ætt- ingjana. Mundu að öll mál hafa fleiri hliðar en eina. Þ»ú hefur til skamms tíma verið alltof upp- tekinn af sjálfum þér. Heillalitur er blár. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú mátt ekki gera ráð fyrir mikilli tekjuaukningu, þótt þú leggir hart að þér. Þú verður að greiða óvænt útgjöld. Vertu ögn hjálpsamari. Þú verður miðdepill mikils mannfagnaðar. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Það eru ýmsir sem vilja geía þér ráðleggingar og vara þig við ákveðinni persónu. Vertu vel á verði og þá siglirðu klakklaust í gegnum brim og boða. Vertu rausnarlegur þegar þú skemmtir þér. -P Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú skalt hafa taumhald á skapi þínu, ólundin bitn- ar mest á saklausum. Ungt fólk lendir í ævintýrum í vikulokin. Föstudagur og laugardagur munu eink- um verða fengsælir. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Vikan verður fremur viðburðasnauð, en ekki leið- inleg. Leggðu þig fram við störfin. Launaðu vini greiðvirkni hans, ef þú kemur því við. Hugsaðu betur um þarfir þinna nánustu. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú skalt ekki taka þátt í deilum, það vill einhver fá þig til að gefa yfirlýsingu, en láttu eigi veiða þig. Dökkhærð kona, lágvaxin mun vekja hjá þér áhuga. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): t>að er ekki eingöngu undir sjálfum þér komið hvort þú getur haldið áfram á þeirri braut sem þú nú ert. Sú stefna sem þú hefur sett fram nýlega mun hafa mikla þýðingu, ef til vill valda úrslitum. s Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Vertu samvinnuþýður og reyndu að sjá skynsemi í skoðunum annarra. I vikulokin muntu lenda í ævin- týri sem gerir þig óttasleginn og vekur margar spurningar í brjósti þínu. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Heimurinn sýnir sínar beztu hliðar og þú verður óvenju bjartsýnn á lausn vandamálanna. Ættingi eða vinur kemur skyndilega í heimsókn og færir þér mikilvægar sannanir. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Sjóðu til að aðrir ræki skyldur sínar, þar sem um sameiginleg hagsmunamál er að ræða. Láttu ekki happ úr hendi sleppa, sláðu heldur lán, e£ þú neyð- ist til. Likur á spennandi ökuíerð. kgpi Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þér reynist nauðsynlegt að taka nokkra áhættu, vertu ekki taugaóstyrkur, þá hefurðu litla vinnings- möguleika. Annaðhvort færðu launahækkun eða þér hlotnast eitthvert annað hnoss. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Dveldu sem mest meðal ungs fólks, ættingja, syst- kina og barna, ef þú hefur nokkur tök á því. Róm- ant.sk áhrif stjarnanna eru í bezta lagi. Þú nýtur mikillar gestrisni á mánudag.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.