Vikan - 17.10.1968, Blaðsíða 25
EFTIR
HUNTER DAVIES
5. HLUTI
EINKARÉTTUR Á ISLANDI VIKAN
Eitt sinn iéku þeir á næturklúbbi, þar sem nektar-
sýningar voru haldnar. Þeir áttu til dæmis að leika undir
á meðan nektardansmærin „Janet the striþper“ klæddi
sig úr hverri spjör.
„Hún lét okkur hafa nótur yfir lögin, sem við áttum
að spila,“ segir George. „En við kunnum ekki að lesa
nótur og spiluðum alltaf allt annað, og hún varð báh
reið. Hún kærði okkur og við urðum að liætta.
Við máttum þalcka fyrir að fá tækifæri til að spila
eitt kvöld í viku og þénuðum aldrei meira en fimmtán
shillinga á kvöldi.“
Það blés sem sagt ekki byrlega fyrir þeim félögum
á þessum árum. Ekkert gerðist, fyrr en þeir fóru til
Hamborgar.
Níundi kafli
HAMBORG
Hamborg er Liverpool Þýzkalands. Á báðum stöðum
er loftslag votviðra- og stormasamt. Á sama hátt og
íbúar Liverpool eru Ilamborgarar auðþekktir á fram-
burði sínum livar sem er í heimalandi sínu. En Ham-
borg er helmingi stærri en Liverpool og spillingin því
meiri að sama skapi. Allir þekkja Reeperbahn, aðalgötu
Hamborgar. Þar eru íleiri næturklúbbar og nektarsýn-
ingar en á nokkrum öðrum stað í heiminum.
Þegar Bítlarnir komu til Hamborgar 1960, var borg-
in griðastaður vopnasala, sem höfðu viðskipti við þjóð-
ernissinna í Alsír, en þeir höfðu gert uppreisn gegn
Frökkum, eins og kunnugt er. Þessi starfsemi setti svip
sinn á næturlífið. Vopnasalarnir höfðu aðsetur í klúbb-
unu n og gerðu veitingaþjónana sér hliðholla með mút-
um.
Maður að nafni Allan Williams réði Bítlana til farar-
innar og ók þeim sjálfur til Hamborgar. Hann hafði áð-
ur fengið tvær aðrar hljórnsveitir frá Liverpool til að
koma til Hamborgar og leika á rokknæturklúbb, sem
liét Kaiserkeller. Eigandi staðarins hét Bruno Kosch-
meider. llljómsveitirnar höfðu aukið aðsókn að stað
hans, og þess vegna vildi hann íá eina hljómsveit enn
frá Liverpool. Hið eina, sem John Lennon man úr ferð-
inni, er, að þeir höfðu viðdvöl einhversstaðar i Hollandi.
Þar hafði hann hnuplað í nokkrum verzlunum, eins og
hann gerði oft.
Þeir félagar höfðu fengið sér nýjan klæðnað til að
leika í: flauelsjakka, sem vinur Pauls hafði saumað á
þá, níðþröngar svartar buxur, hvítar skyrtur, Svart-
röndótt bindi og támjóa, ítalska skó. Þeir greiddu hárið
slétt aftur eins og Tony Curtis.
Pete Best hafði bætzt í hópinn sem trommuleikari
hljómsveitarinnar. Rings Starker (sem síðar kallaði sig
4i. tbi. viKAN 25