Vikan - 07.11.1968, Síða 33
Halldór Pétursson er fæddur 26. september 1916
í Reykjavík. Hann er löngu landskunnur af teikn-
ingum sínum og málverkum, og tvö af verkum
hans eru sennilega kunnari útlendingum en
nokkur önnur íslenzk verk: Merki flugfélaganna
tveggja, Flugfélags íslands og Loftleiða. -
Halldór hefur teiknað fyrir Vikuna frá því hún
hóf útkomu sína fyrir þrjátíu árum, og hér kynn-
um v:ð hann í máli og myndum á næstu síðum.
Viðtalið gerði Sigurður Hreiðar.
Á þessu ári eru 30 ár liðin síð-
an fyrst birtist teikning í 'Vikunni
með undirskriftinni HP. Líklega
hefur þá verið á tiltölulega fárra
vitorði, hver þessi HP var. Síðan er
driúgur vatnssopi runninn til sjáv-
ar og nú eru þeir ekki margir, sem
eru í vafa, þegar þeir sjá teikn-
ingu merkta HP. Halldór Pétursson
er fyrir löngu orðinn einn af vin-
sælustu listamönnum þjóðarinnar og
hver er sá, sem ekki hefur einhvern
tíma hlegið hjartanlega að teikn-
ingum hans?
Það renndi sem sagt margt styrk-
um stoðum undir þá hugmynd, að
spjalla við Halldór í þrjátíu ára af-
mælisblaði Vikunnar og birta nokkr-
ar myndir af honum og eftir hann.
En hann var ekki ginkeyptur fyrir
því. Eg varð að beita allri minni
fortölukúnst og gefa ýmiss fögur
fyrirheit (upp í ermina) áður en
hann loks gafst upp og sagði:
— Jæja, ég býð þér þá í morg-
unkaffi klukkan tíu í fyrramálið.
Venjulega leitast ég við að vera
stundvís, en umræddan morgun var
klukkan að verða hálf ellefu, þeg-
ar ég stöðvaði jeppann utan við
heimili Halldórs í Drápuhlíð 1 1. Þá
var Halldór að ganga niður tröpp-
urnar, ánægjulegur í bragði en nam
staðar þegar hann sá til mín og
vonbrigðasvip brá fyrir á andiitinu.
— Ég var að vona, að þú hefðir
gleymt þessu öllu, sagði hann, þeg-
ar ég kom nær. Svo brosti hann
glettnislega og bauð mér að ganga
í bæinn, þar sem morgunkaffið
beið — mín, því Halldór var auð-
vitað búinn eftir þessa bið. En
hann náði sér í stóran, grænan
bolla, kvaðst ekki vilja neinar fing-
urbjargir, og fékk sér meira kaffi
mér til samlætis. Svo fórum við að
tala saman.
— Við getum til dæmis byrjað á
þvi, hvaðan þú ert af landinu, Hall-
dór.
— Nú, veiztu það ekki? Ég er
Reykvíkingur, Vesturbæingur meira
að segja. Og foreldrar mínir eru
bóðir fæddir Reykvíkingar.
— Þú ert þá sem sagt fæddur
KR-ingur.
— Maður skyldi halda það. En
það er nú svo undarlegt, að ég og
bróðir minn vorum næstum einu
Vesturbæingarnir, sem ekki vorum
i KR. Ég veit ekki til, að það hafi
verið nein sérstök ástæða fyrir því,
nema ef vera skyldi sú, að bræð-
urnir í Ási, Friðrik Sigurbjörnsson,
Halldór og þeir, miklir vinir okkar,
voru allir æstir Víkingar. KR-ing-
arnir voru meira niðri við Vestur-
götuna og þar — og það var ekki
VIKAN—AFMÆLISBLAÐ 33